Skýrsla miðstjórnar Alþýðusambands Íslands um starf sambandsins 1946-1948 - 14.11.1948, Page 63
„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að skipa þriggja manna
nefnd til að endurskoða gildandi lög og reglugerðir um eftirlit með
verksmiðjum og vélum. Nefndin skal skipuð þannig: Ráðherra skipar
einn mann án tilnefningar, en tvo samkvæmt tilnefningu Alþýðu-
sambands íslands og Félags islenzkra iðnrekenda, sem tilnefna sinn
manninn hvort.
Nefndirf skal hefja störf sín svo fljótt sem verða má og ljúka þeirn
fyrir næsta reglulegt Alþingi.
Kostnaður við störf nefndarinnar greiðist úr ríkissjóði."
Tillögunni var að umræðu lokinni visað til nefndar og kom þaðan
nokkuð breytt og var þá svohljóðandi:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta fram fara endur-
skoðun á gildandi lögum og reglugerðum um eftirlit með verksmiðj-
um og vélum. Endurskoðununni skal hraða sem verða má og árangur
hennar lagður fyrir næsta reglulegt Alþingi.“
Þannig var tillagan samþykkt sem ályktun Alþingis 16. maí 1947.
A haustþinginu 1947 bar Hermann Guðmundsson fram fyrirspurn
til þess ráðherra er þetta mál heyrir undir og var fyrirspurnin á
þessa leið:
„Hefur ríkisstjórnin framkvæmt þá endurskoðun á gildandi lög-
um og reglugerðum um eftirlit með verksmiðjum og vélum, sem
henni var falið með ályktun Alþingis 16. maí 1947 og leggjast skyldi
fyrir yfirstandandi þing?“
Skömmu síðar var skipuð nefnd til endurskoðunar á lögum um
eftirlit með vélum og verksmiðjum og á Alþýðusambandið þar Krist-
mn Ág. Eiríksson sem fulltrúa. Nefnd þessi er nú að semja frv. um
ör)’ggi verkafólks við vinnu, og mun það frv. verða lagt fyrir næsta
Alþingi.
Skömmtun vinnufatnaðar
A Alþingi 1947 báru þeir H. G. og Sig. Guðn. fram eftirfarandi
tillögu til þingsályktunar:
..Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að hlutast til um, að
skömmtunarfyrirkomulagi því, sem birt er í auglýsingu nr. 8 1947 frá
skömmtunarstjóra, og áður birtri auðlýsingu um skóskömmtun, verði
breytt á þann veg, að vinnufatnaður og vinnuskór verði undanþegn-
63