Úrval - 01.02.1946, Blaðsíða 36
Smáskrítið og skemmtilegt ævintýri
fyrir unga og gamla.
Mörg tungl
IJr bókinni „Many Moons“,
eftir James Thurber.
í KONUNGSRÍKI við hafið
var einu sinni lítil prinsessa
sem hét Leonóra. Hún var á
ellefta ári. Dag nokkum veikt-
ist hún og varð að leggjast í
rúmið, af því að hún borðaði yf-
ir sig af hindberjatertu.
Hirðlæknirinn kom til hennar,
mældi hana, þreifaði eftir æða-
slögunum og lét hana reka út
úr sér tunguna. Hann varð
áhyggjufullur og lét sækja kon-
unginn, föður Leonóru, og kon-
ungurinn kom til að líta á hana.
„Ég skal útvega þér allt sem
hjarta þitt gimist,“ sagði kon-
ungurinn. „Er nokkuð sem
hjarta þitt girnist?"
„Já,“ sagði prinsessan. „Ég
vil fá tunglið. Ef ég get fengið
tunglið verð ég frísk aftur.“
Konungurinn fór inn í hásæt-
issalinn, ogtogaði í bjöllustreng-
inn, þrjú löng tog og þrjú stutt,
og brátt kom hirðstjórinn inn í
salinn. Hann var stór og feit-
ur með þykk gleraugu og sýnd-
ust augu hans fyrir það helm-
ingi stærri en þau vom í raun
og vem. Af sömu ástæðu sýnd-
ist hann helmingi vitrari en
hann var í raun og vem.
„Ég vil fá tunglið handa Leo-
nóru prinsessu," sagði konung-
urinn. „Ef hún fær tunglið verð-
ur hún frísk aftur. Náðu í það í.
kvöld, í síðasta lagi á morgun.“
Hirðstjórinn þurrkaði sér um
ennið með stórum vasaklút og
snýtti sér svo hátt og hvellt.
„Ég hefi útvegað yðar hátign
margt þann tíma sem ég hefi
þjónað yður,“ sagði hann. „Það
vill svo til að ég er með lista
yfir það allt saman.“ Hann dró
langa pergamentrúllu upp úr
vasa sínum. „Við skulum nú
sjá,“ hann leit á listann og
hleypti brúnum. „Ég hefi útveg-
að yður fílabein, apa og pá-
fugla; rúbína, ópala og
smaragða; svartar rósir, rauða