Úrval - 01.02.1946, Blaðsíða 85
D/EMDU SJÁLFUR
83
Fyrir ógætni lyftustjórans datt
konan á gólfið og lenti með ann-
an fótinn út á milli grindanna.
Hlaut hún alvarleg meiðsli á
vinstra fæti, mjöðm og síðu. Hið
ófædda barn varð einnig fyrir
meiðslum og fæddist það mátt-
laust. Ef gert er ráð fyrir ao
spítalinn sé bótaskyldur gagn-
vart konunni, er hann þá einnig
bótaskyldur gagnvart baminu
sem slasaðist áður en það fædd-
ist?
3. Vændiskona var ákærð
fyrir morð og sýknuð. Hún
'hætti fyrri lifnaði sínum, giftist
og lifði í alla staði fyrirmyndar-
Mfi. Hún ávann sér virðingu
samborgara sinna og eignaðist
marga vini, sem ókunnugt var
u.m fyrra lífemi hennar. Án vit-
undar hennar og leyfis var gerð
kvikmynd, sem í einu og öllu
var byggð á fyrra líferni henn-
ar, og var nafn það, sem hún
bar áður en hún giftist, notað
í myndimii. Við þetta urðu vinir
hennar alls vísari um fyrra líf-
emi hennar og hlaut hún fyrir
það álas þeirra og fyrirlitningu.
Atti hún rétt á skaðabótum?
4. John Doe yfirgaf konu
sína, Mary Doe. Bróðir Johns
taldi Mary trú um að John hefði
farist með skipi. Þegar sex ár
voru liðin frá því að John hvarf,
án þess að Mary frétti nokkuð
af honrnn, giftist Mary Richard
Roe, í þeirri trú að hún væri
ekkja. Skömmu seinna upp-
lýstist, að John væri enn á lífi.
Mary var ákærð fyrir tvíkvæni
með tilvísun til lagagreinar,
sem mælir svo fyrir, að sérhver
sá sem giftist, en hefir áður ver-
ið giftur, sé sekur um tvíkvæni,
ef fyrri rnakinn er enn á lífi,
nema að fyrri makinn hafi stöð-
ugt verið fjarverandi í sjö ár og
að hann eða hún sem giftist í
annað sinn hafi ekki allan þann
tíma vitað að fyrri makinn væri
á lífi. Dómarinn benti kviðdóm-
endunum á, að sú trú Mary, að
maður hennar væri dáinn, væri
engin vöm gegn ákærunni um
tvíkvæni með tilvísun til áður-
nefndrar lagagreinar, þar eð
hún hefði gifzt aftur áður en
sjö ár voru liðin frá hvarfi fyrri
manns hennar. Kviðdómendum-
ir dæmdu Mary seka, en hún
áfrýjaði.
Var Mary sek um tvíkvæni ?