Úrval - 01.02.1946, Síða 115

Úrval - 01.02.1946, Síða 115
BÖRN GUÐS 113 höfðingi inn í borgina og handtók hina foringjana. Síðan ávarpaði hann mannfjöldann á torginu. „Hinlcel ofursti hefir ákveðið að frelsa ykkur frá glötun," sagði hann. „1 fyrsta lagi féllst hann á að fram- selja foringja ykkar. í öðru lagi að þið yrðuð afvopnaðir. í þriðja lagi að þið látið eignir ykkar upp í stríðs- kostnaðinn.“ Hann þagði og leit í kringum sig. „Ennfremur verö'ið þið að fara burt úr ríkinu. Mér er sama hvort ykkur líkar það betur eða ver. Ég er hér til þess að sjá um að friðar- skilmálarnir verði haldnir. Þið stofnið 12 manna nefnd til að undirbúa brott- förina. Og þó að foringjar ykkar hafi látið vopnin af höndum, er nauðsyn- legt að rannsaka hvert hús.“ Hann snéri sér að iiermönnunum. „Leitið í hverju húsi.“ Allt í einu kváðu við óp og gól. óþjóðalýður klæddur eins og villimenn kom ríðandi i stórhópum inn í þorpið. Og um leið hófst sannkallaður djöfla- dans. óoir hestríðandi menn ráku Mormónana á flótta i allar áttir. Sumir flýðu heim til sín, aðrir að heiman með börn í fanginu og það litla af húsmunum, sem þeir gátu haldið á. Er nóttin féll á hófst rán og bar- smíðar og nauðganir fyrir alvöru í þorpinu. 1 Frelsisfangelsinu. Parley Pratt var settur í fangelsi í Richmond. Jósep, Sidney Rigdon og Lyman Wiglit, ásamt Hyrum bróður Jóseps og manni að nafni McRae, var varpað í Prelsisfangelsio í Clay-fylki þar, sem þeir áttu að bíða réttarhalda. Jósep virtist þessi litla steinbygging með tveimur örsmáum gluggum hátt Uppi í þykkum veggnum fremur líkjast gröf en fangelsi. Hann brosti biturlega, þegar hann leit í kringum sig og minntist nafns þessa húss. Að fáum vikum liðnum var Rigdon látinn laus. Eftir handtökuna hafði hann oft verið óður og var orðinn grindhoraður. Náðun hans var auð- sýnilega til þess eins að hann dæi ekki í fangelsinu. Jósep trúði ennþá á það, að guð munai ieysa þá alia; og þó að hann missti máttinn dag frá degi vegna óloftsins í fangelsinu, steingólfsins, sem liann svaf á og hinnar óhreinu fæðu, var hugur hans engu að síöur bundinn við framtíð kirkjunnar. Dularfullar sýnir liðu fyrir hug- slcotssjónir hans. Honum fannst sem miljónir ófæddra sálna biðu lausnar inn í jarðneskt líf. Honum fannst hræðilegt að hugsa til þess að til væru barniausar konur, sem ættu enga eiginmenn og aðrar, sem ekki vildu eiga nenia eitt eða tvö börn fyr- ir sjálfselsku sakir. Slík ófrjósemi tafði straum lífsins og lagði hömlur á vöxt kirkjunnar. Pílagrimsganga andanna gegnum fæðingu og jarð- neskt líf og gegnum dauða og upp- iísu þarfnaðist örvunar, þarfnaöist stærri fjölckyldna. Plann vissi, að í söfnuðum kirkjunnar voru konur margfalt fleiri en karlar. Var það rétt, að þær ættu um enga aðra kosti að velja en ófrjósemi og hórdóm? Hann minntist Abrahams og annarra forfeðra, sem átt höfðu margar kon- ur og börn og fór að brjóta heilann um það, hvort hann mundi ekki inn- an skamms fá vitrun um þetta atriði. Hann efaði ekki, að vitrun mundi hann fá. Það var hlægilegt fjrrir mann með slíkum lífsþrótti og heilsu að eiga aðeins eina konu og örfá börn, þar eð hunörað gætu borið nafn hans . . . „Lyman bróðir,“ sagði hann einn daginn upp úr þurru, ,,við verðum bráðum lausir.“ „Hvernig veiztu það ? “ „Guö kunngjörir sinn vilja.“ ,,Eg vildi óska, að hann flýtti sér til þess. Við eyðum hér tímanum.“ „Við erum áreiðanlega kirkjufeður, sem orð er á gerandi," sagði McRae og klóraði sér í skítnu skegginu. Þetta rættist að viku liðinni, en
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.