Úrval - 01.04.1974, Side 111

Úrval - 01.04.1974, Side 111
ÁSTKONUR BYRONS 109 leyfir, að svo verði. Og sem fyrsta tákn hollustu minnar, býð ég fram mína fyrstu ráðleggingu. Lagaðu hégómagirnd þína, sem er brosleg. Dragðu úr fjarstæðukenndu ofríki gagnvart öðrum. Og — láttu mig í friði. Þinn auðmjúkur þjónn. Byron.“ Þessu var þá lokið, hvað hann snerti. En svo varð aldrei af henn- ar hendi. Hatur og ást æstust á víxl í vitund hennar. Á nýjum einkenn- isklæðnaði þjóna sinna fyrirskipaði hún hnappa áletraða á latínu. „Ne crede Byron“ —• aldrei trúa Byron. Hún falsaði bréf með rithönd hans og sendi til útgefanda hans til að fá, ef auðið yrði, mynd, sem hann hafði neitað henni um. Hún bauð ungum svöllurum í London hylli sína, ef þeir vildu skora Byron á hólm fyrir hennar hönd. Hún hélt sérstaka hátíð með víS- eigandi helgisiðum í Brocket Hall fyrir ungar stúlkur í þorpinu íklæddar hvítum skikkjum, þar sem eftirlíking af Byron var brennd á báli og bókum sem hann hafði gefið henni, ásamt hárlokki af hon- um var varpað á eldinn, og síðast fékk eldurinn afrit af bréfum hans •— frumritin geymdi hún hins veg- ar vandlega. Hún gerði umsát um hús hans í London. „Hún kemur alltaf ein- hvern tíma,“ skrifar hann. „Hvert sinn sem dyr opnast, kemur hún.“ Einu sinni fann hún engan heima. Bók eftir Beckford lá þar á bohði. Hún fletti henni upp og hripaði yf- ir titilblaðið. „Mundu mig“. Þegar Byron kom heim, sá hann áletrunina á bókinni. í reiðikasti settist hann við borðið og skrifaði átthendu: „Muna þig. Muna þig. Til þess er Leþa sekkur brennandi loga lífsins skal iðrun og skömm verða förunautar þínir, og elta þig sem óráðsdraumur. Muna þig. Muna þig. Þinn eiginmaður ætti að hugsa um þig. Hvorugum munt þú gleymast. Honum fölsk, en fjandi minn.“ Æðisgangur Caroline náði há- marki að kvöldi 5. júlí 1813. Á stórum dansleik, sem haldinn var af Katharine Heathcote, stóðu þau Byron og Caroline augliti til auglitis allt í einu. Hljómsveitin lék vals. Caroline sagði við Byron. „Ég geri ráð fyrir, að mér sé ætlaður þessi vals.“ Hann svaraði í styttingi. „Alltaf til í tuskið.“ Þegar dansinum var lokið, dró hún sig að honum. Hann var þá á tali við konu, og hvíslaði háðslega í átt til Caroline: „Ég dáð ist að slægð þinni.“ Hann bjó sig til að fjarlægjast hana. En þá fór — eins og hann lýsir síðar: „Hún greip um hönd mér og þrýsti henni að einhverju egghvössu verkfæri, og sagði: „Ég ætla að nota þetta!“ En ég svaraði: ,,Á mig, geri ég ráð fyrir“.“ Þegar hann gekk brott, hrópaði hún: „Byron,“ og þaut fram í borð- stofu og fór að skera á arma sér með beittum ávaxtahníf. Óttaslegnir veizlugestir reyndu
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.