Norðurljósið - 01.01.1984, Blaðsíða 31
NORÐURIJÓSIÐ
31
þeir voru andspænis þessum ljósblysum himnanna, er þeir á
hljóðlátu haustkvöldi virtu fyrir sér tindrandi ljósin.
Nýlega las ég um jarðstirnið Venus, að sérfróðir menn líta
svo á, að hitinn þar geti verið um 400 stig. Og að þessi
himneski líkami, er glitrar svo, sé alls ekki eins fagur og
rómantískur, sé komið í nánd við hann. Fremur er hann sem
eldur helvítis, eiturgas, gufur og fljótandi að utan. Nú, jæja,
það eru notuð nokkuð sterk orð um ástandið þarna, hve
óhugnanlegt það er. Og í raunveruleikanum er það allt
öðruvísi en vér getum trúað, og hræðilegra en hugarórar geta
kallað fram, segir í skýrslunni.
Jú, fjarlægðirnar eru miklar úti í geimnum. Venjulegum
heila er það erfitt að skilja slíkar fjarlægðir. Vér þurfum ekki,
að hugurinn striti svo mikið. Á fjarskalega lítið af því, sem
gerist úti í geimnum, getum vér haft áhrif, sem betur fer.
Öðru hvoru koma þó fréttir frá stjarnfræðingum, að þeir
hafa uppgötvað eitthvað nýtt. Smágrein kom fyrir skemmstu,
sem skýrði frá, að amerískir stjarnfræðingar þrír, höfðu ný-
lega uppgötvað saman: að geysimikið tómt rúm er í himin-
geimnum. Þeir staðhæfa að þetta „gat“ í geimnum hefði átt
að hafa 3000 vetrarbrautir, því að stærð þess er 300 milljónir
ljósára.
Merkilegt er, að þetta hefir ekki verið uppgötvað fyrr. Til
samanburðar má geta þess, að okkar litla Vetrarbraut er
„aðeins“ 100.000 Ijósár. Og þá verður þetta stóra sannarleg
ráðgáta. Rannsókna-Mennirnir lýsa þannig uppgötvun
sinni, að þeir geti næstum ekki trúað eigin augum. En fyrst
þetta er nú svona, þá verða þeir alveg að endurskoða „sköp-
un heimsins og uppbyggingu hans,“ stendur þar. Þetta vekur
áhuga, og ég get ímyndað mér, að breytingar verði á hug-
myndunum innan skamms. En svo kemur að því, að þeir
nálgast sannleikann, og þá lúta þeir með lotningu guðdóm-
legu viskunni, sem uppi ber sólkerfin öll....
En stjarnsjárnar þessar stóru — með öllum sínum hjálp-
argögnum — hafa fleiri fregnir að færa oss, er gera oss
undrandi. Þú hefir sjálfsagt heyrt um það, hvað doktorarnir
Malvin Ross og William Hubbard staðhæfa?
Hlustaðu nú á þetta. Hér kemur það. Jarðstjörnurnar tvær.