Norðurljósið - 01.01.1984, Blaðsíða 96
96
NORÐURI.JÓSIÐ
sjá það. Sjáðu bara sortann í kringum það. En ég efast ekkert
um, að það væri ekki of erfitt fyrir hann að gjöra þetta fyrir
einn af smælingjum hans, aðeins til að hafa unun af handa-
verkum hans.
Við báðum þá um þetta og héldum síðan leiðar okkar að
járnbrautarstöðinni.
Þá tókum við eftir því, og þeir, sem voru okkur samferða,
að veðrið var að breytast. Svörtu skýin fóru að hreyfast,
rofnuðu, hófust upp sem tjald á leiksviði. Vindurinn feykti
þeim burtu. Fór þá að sjá í Fuji gegnum göt, sem komu hér
og þar. En er við komum á járnbrautarstöðina, hafði eitthvað
meira gerst. Komið var heiðríkt veður og sólskin hið feg-
ursta, sem laugaði fjallið frá rótum upp á snæviþakinn tind-
inn, er skar sig þar inn í eilífa blámann.
Er ekki Fuji dásamleg hrópuðum við hvor um sig. Og var
ekki Drottinn góður að gjöra þetta fyrir okkur. Og við nutum
ánægjunnar til fulls. Vinur okkar skrifaði okkur síðar, hvað
gerðist, er við vorum farnar. Skýin komu aftur, eins og þeim
væri skipað það, þokan einnig. Og á enda rann hvirfilvind-
urinn skeið sitt.
2. ráðgjafi
Vér veitum viðtöku öðru nafni hans eins og það er. „Hann er
undursamlegur í ráðum og mikill að vísdómi.“ (Jesja 28. 29.).
Dásamlegar ráðleggingar — þær mundu vera gagnslausar,
nema þær væru framkvæmanlegar, og að gott leiddi af þeim.
Ráðleggingar manna geta brugðist, en Drottins aldrei. Andi
„ráðspeki og kraftar“ hvílir yfir honum. — Guðdómlegt orð
hans ráðleggur, og guðlegur kraftur framkvæmir. „Ég vil
kenna þér og hafa augun á þér,“ er fyrirheit hans.
„Þú skalt leiða mig eftir ráðsályktun þinni,“ svarar hjartað
trúaða. Og ef vér látum „orð Krists“ búa ríkulega hjá oss með
allri speki, munum vér fá að reyna, hvernig það upplýsir oss,
leiðbeinir oss, leiðir oss síðan inn í gæsku forsjár hans.
Ég var stödd í Kólumbíu í Suður-Ameríku fyrir nokkrum
árum. Vandamál mætti mér. Lög höfðu gengið í gildi. Bök-