Norðurljósið - 01.01.1984, Blaðsíða 108
108
NQRÐURI .JÓSIÐ
Herra, sjá bylgjurnar brotna,
og beljandi stormur hvín,
og himinninn hulinn er skýjum,
vér hrópum í neyð til þín:
Hirðir þú ei um það, Herra,
hér þó að týnumst vér?
Hvernig getur þú blundað á bárum?
Vor bátur í voða er.
Kór.
Sjá, ég hef vald yfir vindi og sjó!
Verði ró. Verði ró.
Alls enginn maður né myrkravald,
ei magnþrunginn hafsjór með öldufald
fær grandað því skipi, sem geymir í sér
þann Guð, sem frá upphafi var og er.
Sjá, ég hef vald yfir vindi og sjó,
verði hér ró.
Herra, ég andvarpa í angist,
því anda minn skortir frið,
og hafdjúp mins hjarta er ókyrrt,
um hjálp þína og náð ég bið.
Sál mín er glötuð að sökkva
syndmyrkra hylinn í.
Tak við stjórninni, himneski Herra,
ég hjálparlaus til þín flý.
Herra, nú heyrist ei andblær,
nú hefi ég fundið skjól.
Mín önd speglar himininn hreina
sem hafdjúpið morgunsól.
Drottinn minn, far þú ei frá mér,
fylg mér því leið er vönd.
uns ég höfn næ og hugglaður uni
á himneskri friðar strönd.