Vísir - 14.12.1960, Síða 59

Vísir - 14.12.1960, Síða 59
Hólar í Hjaltadal. skaparári Þorleifs Guðmundssonar. Hin sið- ustu ár sín teflir hann bókstaflega við dauðann um að rækta tún, að þvi marki er hann ætlaði sér og taldi viðunandi á Vífilsstöðum. Þannig skeður ýmislegt athyglisvert í rækt- unarmálum og búskap á öðrum tug aldarinnar. Mest allt er það í beinu samhengi við vakn- ingu þá í búnaði, sem óneitanlega átti sér stað á fyrsta áratug aldarinnar, og hefst með stofn- un Ræktunarfélags Norðurlands og bændanám- skeiðunum, sem farið er að efna til við Bænda- skólana og víðar. Árið 1905 kveður Guðmundur á Sandi til Ræktunarfélagsins: Gjörvöll landsins fen og flóa, fúakeldur, holt og móa á að láta grasi gróa, gera að túni alla jörð, jafnvel holt og blásin börð. Bændurnir tóku þessa ræktunarhvöt bóndans á Sandi norður við íshafið til söngs og fram- kvæmda. Nokkrir i miklum mæli, eftir þvi sem aðstæður leyfðu, hjá flestum var viljinn meiri en getan og allur þorri bænda var þá enn bundinn við þúfurnar og vöntun afls og orku og gat litlu um þokað. Svo fór fram yfir- leitt tvo fyrstu tugi aldarinnar. Árið 1900 er stærð túna talin vera 16 933 ha. 1910 18 593 lia og 1920 22 031 ha. — Nýrækt 1911 er um 125 ha, árið 1920 er hún ekki nema 73,7 ha og fór minnkandi frá 1913—1918. Enn ræður útheyskapurinn mestu um bú- stærð bænda. •4r Töðufengur Úthey hestar hestar 1900 538 000 1 036 000 1910 553 000 1 145 000 1920 512 000 1 129 000 En þess er að minnast að árið 1920 eimir enn eftir af kalárinu mikla 1918. Búfjáreignin er i samræmi við þetta. Á árun- um 1910—1920 fækkar nautgripum heldur en hitt (25 978, og 23 497). Sauðféð stendur í stað (578 634, og 578 768) en hestum fjölgar, eru 44 815 árið 1910 en 50 645 árið 1920. Um mjólk- urframleiðsluna er þannig ástatt, að það er mjólkurskortur i hinum vaxandi höfuðstað á árunum kringum 1920. Þessi ár eru þó tíð smjörbúanna. Hið fyrsta er stofnað árið 1900, árið 1906 eru þau orðin 34 og framleiða 127, 500 kg. af smjöri, 1912 hefir búunum fækkað niður í 31 en framleiðslan hefir aukist i 184, 500 kg. Úr því dregst þessi starfsemi saman svo að 1918 eru smjörbúin ekki nema 12 og framleiðslan ekki nema 30 smálestir. Þetta var samt merkileg viðleitni og framsókn í bú- skapnum. Nýjar þarfir og ný viðhorf báru fram bætt og stærri úrræði, mjólkurbúin koma i stað smjörbúanna. Mjólkurfélag Reykjavíkur er stofnað 1917 og kemur sér upp mjólkurstöð 1920. Mjólkurfélagið Mjöll i Borgarfirði byggir skála á Beigalda i Borgarhreppi árið 1919 og kemur þar fyrir vélum til rjómaniðursuðu. Það er liinn fyrsti mjólkuriðnaður. Sláturfélag Suðurlands er stofnað 1907 og hefst til áhrifa. Búnaðarsamböndin hefjast einn- ig til áhrifa um þessar mundir. Búnaðarsam- b”and Austurlands stofnað 1904, Bsb. Vestfjarða 1907, Bsh. Suðurlands 1908, Bsb. Borgarfjarðar 1910 og Bsb. Kjalarnesþings 1912. Fram til 1910 er ekki nema einn dýralæknir starfandi á landinu, með búsetu í Reykjavik, en það ár bætist annar við með búsetu á Akureyri. Það rofar til í búskapnum á þessum áratug, vakandi menn leita sér vega, en skortir margt til þess að slcriður komist á framkvæmdirnar. Það sem mest skortir, til þess að gera meira en að þoka ræktuninnni áfram hægum fetum, er áburður og tækni, en án stóraukinnar rækt- unar situr i raun og veru allt við hið sama i sveitunum. IV. Félag bjartsýnna manna á Akranesi kaupir fyrsta traktorinn og fær til landsins 1918. Ekki varð sú tilraun að verulegu gagni, vélin vann vel í flögum en henni reyndist ofraun að plægja seigt land sem eigi hafði áður verið rótað við. Árið 1917 stofnuðu Skeiðamenn áveitufelag 0g vinna hefst við framkvæmd áveitunnar. Flóaáveitufélagið er stofnað 1918 en fram- kvæmdir við þá áveitu hefjast ekki fyrr en 1922. Árið 1919 er keypt skurðgrafa til þess að grafa aðalskurð Skeiðaáveitunnar ag síðar aðalskurð Flóaáveitunnar. Samhliða gröfunni voru keyptir frá Ameríku 2 beltatraktorar og sá þriðji og fjórði um haustið sama ár og næsta vor, að Laxárnesi í Kjós og til Akureyrar. Skurðgrafan vann mikið svo sem ætlað var, en markaði eigi önnur spor i framræslumal- unum. Traktorarnir urðu að litlu liði við jarð- vinnslu, en voru fremur notaðir til annars. í sambandi við stóráveitur þessar er mikilg að minnast. Hinn danski verkfræðingur Thal- bitzer gerði áætlanir um flóaáveituna 1906— 1907. Hann dvaldist þá um tvo mánuði á landi hér og kynntist staðháttum. í áætlun sinni um áveituna segir hann ákveðið að það verði á- reiðanlega ekki hægt að fá vinnuafl innan- lands til þess að vinna verkið, það verði að flytja inn verkamenn frá útlöndum, til þess að því verði komið í verk að grafa áveitu- skurðina á 2—3 árum. Svo dauft fannst verk- fræðingi þessum þá yfir Suðurlandi, svo litla trú hafði hann á framkvæmdasemi og verk- legri getu íslenzkra bænda, var Thalbitzer þó mætur maður og velviljaður. Fimmtán árum síðar er verkið liafið undir stjórn Jóns Þor- lákssonar, því var lokið að mestu á 5 árum, það reynist enginn erfiðleiki að fá vinnuafl til þess að grafa. Mest eru það heimamenn á Suðurlandsundirlendinu sem stinga um 440 þús. rúmmetra upp úr skurðum, sem eru um 300 km að lengd, á þessum árum. Og þetta er gert án þess að sjáanlegt sé að önnur störf séu vanrækt á nokkurn hátt. Þetta er mikill við- burður i nýsköpunarsögu hins ísl. landbún- aðar. Gröfturinn í Flóanum sýndi svo að ekki var um að villast, að bændurnir gátu valdið miklu við að bæta jarðir sinar. Öll svartsýni var óþörf. í raun ag veru biðu bænd- urnir aðeins eftir betri tækjum og mikilvirkari en rekunni, hnausakvíslinni og undirristu- spaðanum. Biðin varð ekki löng. Árið 1919 ræðst Sigurður Sigurðsson skólastjóri á Hólum að Búnaðarfélagi íslands, fyrst sem formaður félagsins, síðar sem framkvæmdastjóri. Þá verða þáttaskil. Hann hafði stofnað Ræktunar- félag Norðurlands fyrir Norðlendinga og með þeim. Nú var að hafa landið allt undir. Sig- urður kemur til leiðar, að efnt er til Búsáhalda- sýningar i Reykjavík vorið 1921. Sýningin varð ekki eins mikil og góð eins og til var ætlast. Það ár skall yfir kreppa er náði til bú- skapar eigi siður en annars, og sem eigi varð fyrir séð er ákvörðun um sýninguna var tekin 1919. Kreppa sú dró mjög úr sýningunni, samt er hún allmikill viðburður. En sama ár skeður annað meira af völdum Sigurðar og B. f., og var raunar þáttur sýningarinnar, eða í sambandi við hana. Þiifnabaninn er keyptur til landsins. Fyrst einn til Reykjavíkur eða Sunnanlands 1921, og annar til Akureyrar 1922, Hœktun með vélaafli er hafin. Notkun hinna stóru, þungu og miklu véla, sem nefndir voru hinu táknræna nafni Þúfna- banar, mishepnaðist i raun og veru, not þeirra urðu skammvinn við ræktun íslenzkrar jarðar. Slikt er eklci að undra, því að þann veg fór einnig í öðrum löndum, þar sem vélar þessar voru teknar i notkun. Samt var þúfnabana- vinnan bylting. Tilraunin varð dýr, svo að B. f. riðaði við, en hvað um það. Eftir á sást betur en þá var hægt að sjá, að þúfnabanaflögin voru uppliaf nýs landnáms, jafnvel þau sem ekki komust i rækt — slíkt var til — vegna vönt- unar á framræslu eða fyrir aðrar sakir. Á stöku stað spruttu upp viðir vellir eftir þúfnabanana. Vifilsstaðamýrin 1922, svo sem fyrr er sagt. Vorið 1923 tætum við 25 lia spildu á kotbýl- inu Korpúlfsstöðum, sem Thor Jensen hafði þá tekið til ræktunar. Slíkar ræktunarspildur voru áður óþekkt og óhugsanlegt fyrirbæri. Aldrei hafði slík vorönn verið unnin á íslenzku býli. Árin 1921—24 eru tættir 323,5 ha með þúfnabana i nágrenni Reykjavikur, og árin 1922—23 um 100 ha i nágrenni Akureyrar. Ein minning frá ræktunarstarfinu á Korp- úlfsstöðum vorið 1923. Er vinnan hófst gekk okkur Gunnl. Gunnlaugssyni fremur treglega, þúfnabaninn var ekki í góðu lagi, smábilanir nær daglega og tafir svo að lítið miðaði áfram verkinu. Thor kom upp eftir daglega og leit eftir, sagði fátt, en ég skildi vel að hann var ekki sem ánægðastur og kveið þvi að settu marki yrði ekki náð, að koma spildunni í rækt- un þá um vorið, það er að fullvinna landið og sá i það. Ég gat engu lofað en taldi góða von um að vinnslunni yrði lokið í tæka tið. Svo fór Thor Jensen úr bænum mig minnir vestur að Haffjarðará. Baninn komst i lag, Afmælisblað VlSIS VÍSIR 50 ÁRA 59
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.