Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.10.1923, Blaðsíða 25
Tímarit íslenskra samvinnufélaga. 71
Hóllendingur. Hann færði fyrirrennara sínum á fundi í
Edinborg í sumar einkennilega heiðursgjöf frá 40 miljón-
um manna, sem eru félagar í alþjóðabandalaginu. Bókin
er stór, í fögru, gyltu skrautbandi, og letrað á, að hún sé
heiðursgjöf til Maxwells frá samvinnumönnum í öllum
löndum. Síðan kom sérstök blaðsíða fyrir hverja þjóð í al-
þjóðasambandinu, með þökk til viðtakanda. og undirrituð
af forráðamönnum hverrar samvinnuheildsölu í samband-
inu, með fánum hvers lands og innsigli hvers sambands.
þessar þjóðir eru tilnefndar: Bretar, Skotar, Frakkar,
J»jóðverjar, ítalir, Svissar, Hollendingar, Belgir, Rússar,
Austurríkismenn, Danir, Norðmenn, Svíar, Jugoslavar,
Ungverjar, Spánverjar, Tiekkoslavar, Pólverjar, Georgiu-
menn, Kanadabúar, Bandaríkjamenn og Litháar.
Á fundi breskra samvinnumanna í sumar
Sex kveðjur. héldu gestir frá sex löndum ræður, og
skýrðu stuttlega frá aðgerðum í samvinnu-
málum heima fyrir. Sendimaður belgisku félaganna sagði,að
þar væri mikill hugur í félagsmönnum að koma upp nýjum
verksmiðjum og framleiðslutækjum, til að tryggja félags-
mönnum góðar og ódýrar vörur. Samvinnukonur hefðu gert
með sér félag til að útbreiða þekkingu og áhuga fyrir fé-
lagsskapnum, og sanna, hve mikið vald liggur í vilja kven-
manna, sem stjórna innkaupunum í bæjunum. Félögin
hefðu sérstaka samninga við fimm dagblöð að flytja eftir
þörfum fréttir um samvinnuna, fróðleik og varnargreinar.
Frá Tjekkoslovakiu kom annar maður. Sagði, að samvinna
hefði verið reynd í sínu landi um 1860, en þá mistekist og
ekki hafist aftur fyr en um 1890, þá á grundvelli Roch-
dale-vefaranna. Síðan hefði stefnan aukist og styrkst ár
frá ári. Kaupfélögin væru sterkasti þátturinn í félags-
skapnum. Nú sem stæði væri helsti erfiðleikinn sá, að pen-
ingagengið lagaðist heldur of ört, svo að tap yrði á birgð-
um. En annars væru landar sínir vongóðir um framtíð-
ina. þeir héldu meir að segja, að samvinnustefnan ein og
annað ekki gæti ráðið bót á böli heimsins, sem nú þjak-
aði allar þjóðir. Sendiboði Finnlendinga sagði, að sam-