Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.10.1923, Blaðsíða 17
Tímarit íslenskra samvinnufélaga. 63
Gömlu félögin í Dalasýslu, Búðardal og
Félögin á Saurbæ, svo og félögin í Króksfjarðarnesi,
Vesturlandi. Borðeyri og Hólmavík, hafa öll haft sæmi-
lega gott ár. Sama má segja um hið litla
félag á fsafirði. Sum þessi félög hafa minkað skuldir að
mun, en önnur staðið í stað. Alt öðru máli er að gegna
um félögin við vesturfirðina. þar hefir verið hið megn-
asta óár. Á Súgandafirði hefir afli brugðist að miklu leyti
í þrjú ár. Fólkið lifir nær eingöngu á fiskiveiðum. Hefir
aflaleysið valdið hörmungarástandi í þorpinu, líkt og
margra ára grasleysi myndi orsaka í sveitahéruðum. þá
vildi félaginu á Súgandafirði til það meginóhapp, að kaupa
verslunarhús kaupmanns þar á staðnum fyrir stórmikið
fé. Ung kaupfélög mega aldrei binda mikið fé í fasteign-
um. Útibú Landsbankans á ísafirði átti ráð á húsum þess-
um eftir gjaldþrota kaupmann. Útibússtjórinn, Jón Auð-
unn, var mjög fýsandi að félagið tæki húsin, en yfirmenn
hans, Landsbankastjórarnir, réðu félagsstjórninni alveg
frá því. En því miður var fylgt þeim ráðunum, sem síður
skyldi. Húsakaup þessi og fiskileysið eyðilögðu félagið. Fé-
iagið á Önundarfirði hefir átt við erfiðleika að stríða.
Velta sveitabændanna þar er líklega ekki meiri en svo, að
þar ætti að vera pöntun, en ekki opin búð alla daga. Má
vera, að þar verði hnigið að því ráði. Næst Súgandafirði
hefir félagið á þingeyri átt erfiðast. Hafa þar eins og ann-
arstaðar, orðið vandkvæði með vélbátaútgerðina, og tölu-
vert tap. þar að auki höfðu verið margir annmarkar á dag-
legum rekstri félagsins. Hefir nú um tíma verið óvíst,
hvort það gæti haldið áfram í sömu mynd og hingað til.
Mælir margt með að hafa mjög ódýran rekstur, helst pönt-
un, þar sem félög eru fámenn. Á þetta sérstaklega við á
krepputímum.
Kaupfélagið í Borgarnesi hefir haft við-
Kaupfélag burðaríka daga hin síðustu missiri.
Borgfirðinga. Óánægja mikil, og víst ekki að tilefnis-
lausu, var orðin með Sigurð Runólfsson.
þótti hinum eiginlegu kaupfélagsmönnum í félaginu margt