Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.10.1923, Blaðsíða 96
KaupfélögTii.
i.
Maður heitir Charles Gide. Hann er franskur hagfræð-
ingur, nú orðinn maður háaldraður. Hann er nú prófessor
í samvinnufræðum við háskóla í París, hinn fyrsti, sem
kent hefir um þá grein félagsmála við nokkurn háskóla.
Ch. Gide hefir ritað margar ágætar bækur um hagfræði og
samvinnumál, og eru sumar þeirra þýddar á nálega öll
tungumál mentaðra þjóða. þykir mikið til þeirra koma,
því að maðurinn er í einu skarpgáfaður, fjölmentaður og
drengilegur hugsjónamaður.
Tvær af bókum hans, „Kaupfélögin“ og hagfræði, eni
nú notaðar í sænskri þýðingu, sem kenslubækur, í Sam-
vinnuskólanum. Benedikt Jónsson á Auðnum hefir skorað
fastlega á stjórn þjóðvinafélagsins að gefa út hagfræð-
ina á íslensku í hinni nýju fræðibókaútgáfu félagsins. Er
nokkur von um, að það verði gert. En bókin er svo stór,
yfir 800 bls. í stóru broti, að þýðing sú yrði nokkur ár að
koma út. En slík útgáfa væri hið mesta þjóðnytjaverk,
því að varla mun nokkur bók til í þeim fræðum, sem grein-
ir jafnljóst og hlutdrægnislaust frá öllum hinum merkustu
stefnum og straumum í viðskiftalífinu og niðurstöðum
fræðimannanna.
Að svo komnu eru ekki tök á að gefa út á íslensku
hina bókina, Kaupfélögin. En til að gefa lesendum Tímarits-
ins nokkra hugmynd um aðalefni hennar, verður hér látinn
birtast dálítill útdráttur, í sem allra stystu máli.