Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.10.1923, Blaðsíða 118
164 Tímarit íslenskra samvinnufélaga.
spekin eða lífsvísindin „pósitiv“, þ. e. bygð á reynslunni
og glöggum skilningi á lögmáli náttúrunnar. Til að styðja
að sigri vísindanna, vildi Saint Simon gefa út allsherjar
fræðirit, sögu og niðurstöður vísindanna. það átti að und-
irbúa hina andlegu gerbreytingu, eins og hin mikla, franska
alfræðiorðabók á 18. öld hafði greitt götu hinnar stjórn-
arfarslegu breytingar. Vegna þessa mikla útgáfuverks, sem
þó komst aldrei í framkvæmd, hafði Saint Simon mikla
löngun til umgengni og samstarfs við fræðimenn og hugs-
unarskörunga.
Eftir því sem árin liðu tók Saint Simon að gerast
óþolinmóðari að bíða eftir hinni andlegu breytingu,
og verður síðar vikið að því. Hugur hans snerist meir og
meir að mannlífsumbótum. Hann vildi skapa nýtt þjóðfé-
lag og nýjan kristindóm. í hans nýja ríki átti þekkingin
að ráða, bæði hin vísindalega þekking heimspekinganna
og hin raungæfa þekking forkólfanna í atvinnurekstri.
Kristindómurinn átti að vera framkvæmd á boði kærleik-
ans, en kreddulaus. Menn áttu að sækjast eftir fegurð og
göfgi þessa lífs, án launavona eða uggs við annað líf. Eft-
ir því sem aldur færðist yfir Saint Simon, stefndi hugur
hans í þessa átt, að vera einskonar spámaður og æðsti-
prestur nýrrar mannlífstrúar.
þessum manni kyntist Comte tveim árum eftir að
hann hvarf úr fjöllistaskólanum. Voru þeir síðan mjög
samrýmdir hin næstu 6 ár. Hin fyrstu ár var Comte læri-
sveinn hans og mjög þakklátur meistara sínum. „Eg á mjög
mikið að þakka Saint Simon“, segir Comte þá í bréfi. „Með
stuðningi hans hefir mér orðið auðveldara að mynda mér
fasta stefnu í heimspekilegum rannsóknum. Og eftir þeirri
braut mun eg halda áfram meðan æfin endist og hvorki
líta til hægri eða vinstri". Og í öðru bréfi segir hann: „Eg
hefi verið tengdur böndum vináttu og samstarfs einum
hinum skarpvitrasta manni, sem nú er uppi um alt, er lýt-
ur að stjórnmálaheimspeki. Eg hefi lært af honum fjöl-
margt, sem eg hefði árangurslaust leitað að í bókum og
fræðiritum, og eg hefi þroskast meir á hálfs árs kynningu