Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.10.1923, Blaðsíða 32
78 Tímarit íslenskra samvinnufélaga.
frá einum af þeim, er talinn var með fyrstu mönnum í
hinni fyrirhuguðu för, svohljóðandi: „Legg til, að norður-
förinni sé frestað um viku; mín för bundin því“. Sá Sam-
bandið sér þá eigi annað fært en að taka þá tillögu til
greina og fresta förinni til 20. júní.
Á aðalfundi Sambandsins 12. júní var rætt um norð-
urförina. Hélt formaður Sambandsins því fast fram, að
förin yrði framkvæmd; aftur lögðu aðrir kapp á það, að
enn yrði henni frestað, og í fundarlok leit svo út, sem
ekkert mundi úr henni verða, en með tilstyrk Skaftfellinga,
er segja má að réðu úrslitunum, var ákveðið, að förin
skyldi hafin frá Tryggvaskála við Ölfusárbrú 22. júní, og
var þá hinum fyrirheitna „leiðtoga“, Sig. Sigurðssyni ráðu-
naut, tjáð það, en hann var staddur í Rangárvallasýslu.
Og þegar Skaftfellingarnir lögðu af stað frá Vík, var hann
þar. En hvað því olli, að hann eigi kom hér vestur með
þeim, eða þá að Búnaðarfélag fslands lét eigi annan mann
nothæfan, sem leiðsögumann í hans stað, er okkur eigi
ljóst. En þetta voru okkur vonbrigði, sem bökuðu okkur all-
mikil óþægindi.
þann 22. júní var lagt upp frá Tryggvaskála, þótt fá-
mennir værum, 2 Skaftfellingar, 1 Rangæingur og 2 Ár-
nesingar. Á Hvanneyri bættist við í förina Eggert Briem
verkfæraráðunautur, 2 Borgfirðingar í Norðtungu og 2
Mýramenn í Hvammi í Norðurárdal. Tóku því 9 bændur og
bændasynir og einn ráðunautur þátt í föi’inni.
þessir fóru: Úr Vestur-Skaftafellssýslu Páll Ólafsson
sýslunefndaiTnaður á Litlu-Heiði, Kjartan Guðmundsson
ljósm. í Vík. Úr Rangárvallasýslu Jón Guðmundsson búfr.
á Stóra Hofi. Úr Ámessýslu Böðvar Magnússon hreppst.i.
á Laugarvatni og Kristinn Ögmundsson búfr. í Hjálm-
holti. Úr Borgarfjarðarsýslu Bjarni Bjarnason bóndi á
Skáney og Ari Guðmundsson búfr. á Skálpastöðum. Úr
Mýrasýslu Hallgrímur Níelsson hreppstj. á Grímsstöðum
og Tómas Jónasson búfr. í Sólheimatungu. Úr Reykjavík
Eggert V. Briem verkfæraráðunautur.
Eins og áður er á vikið, brást okkur leiðtoginn. Við