Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.10.1923, Blaðsíða 79
Ferð
nm Austurland veturinn 1923.
Samband íslenskra samvinnufélaga hefir löngum haft
menn í ferðum til að vekja bændur til umhugsunar um
samvinnumálin. Hafa >ó ferðir þessar lagst niður um
skeið, síðan fyrir stríðið, en hófust aftur 1922. Var >á
maður sendur til fundahalda með bændum um alt láglend
ið sunnanlands, frá Hellisheiði til Hornafjarðar.
Veturinn eftir réðist eg til þessarar ferðar fyrir Sam-
bandið um Múlasýslur. Lagði eg að heiman, frá Ystafelli
13. dag febrúarmánaðar, en kom heim 20. mars. Ritstjóri
tímarits þessa hefir beðið mig að senda ritinu grein um
ferðina. Skal eg nú verða við þeirri bón. Eigi mun eg þó
rita ferðasögu í venjulegu formi og rekja slóð mína frá
náttstað til náttstaðar, heldur vil eg aðeins geta þess, sem
merkast bar fyrir gestsaugun og helst má til umhugsunar
verða. Vil eg segja kost og löst, svo sem mér sýndist hvað
eina, án þess að hræðast, hvað mínum ágætu gestgjöfum
kann vel eða miður í eyrum láta. Á eg þó öllum þar eystra
gott eitt að launa, og vil nú í upphafi þakka öllum, er eg
hitti, góða viðkynning, höfðinglegar viðtökur og hinn ágæt-
asta fai’argreiða, hvar sem eg fór.
I. Ferðin og fundirnir.
það, sem liðið var vetrar, hafði verið óvenju milt og
snælétt. í byrjun febrúar gekk í hríðar nokkrar og norð-
anátt, og þótti mér „snælega snugga“. Með því eg er enn
á léttu aldursskeiði og sæmilega hraustur til gangs, kaus
eg heldur að fara gangandi austur öræfin, heldur en að