Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.10.1923, Blaðsíða 80
126
Tímarit íslenskra samvinnufélaga.
eiga þess von, að teppast með hesta, sem eins oft yrðu til
tafar sem gagns á heiðum. Var eg febrúai'póstum sam-
ferða, austur á Jökuldal, að Skjöldólfsstöðum. paðan hélt
eg ofan Jökuldal og að Bót í Hróarstungu, suður að Birnu-
íelli þaðan, þá yfir að Egilsstöðum, síðan upp með Lagar-
fljóti að austan, upp í Fljótsdal, síðan austur í Skriðdal
og ofan í Egilsstaði aftur. Var nú ferðinn heitið ofan
Fagradal og síðan um firðina. En sökum þess, að geysi-
fönn hafði á fjöllin kyngt úr þokum, þó í bygðum rigndi,
var mér talin trú um, að ferðalag yfir fjallvegi, fjarða á
milli, mundi ófært vera og ráðið eindregið frá því. Varð
það að ráði, að eg slepti fjörðunum, en hélt áfram ferð
minni um Héraðið. Frá Egilsstöðum fór eg til Eiða, þaðan
um Hjaltastaðaþinghá, Hróarstungu og Jökulsárhlíð, yfir
Hellisheiði til Vopnafjarðar. Frá Vopnafirði fór eg sem leið
liggur um Langanesstrandir, Langanes og þistilfjörð að
Svalbarði, hélt þar hinn síðasta fund. En þaðan fór eg nýja
þjóðveginn heim.
Fyrirlestra og umræðufundi hafði eg á þessum
stöðum:
17. febrúar fundur á Grirnsstöðum á Fjöilum, fundarmenn 30
20. Skjöldólfsstöðum á Jökuldal, — 28
22. Bimufelli i Fellum, — 35
23. - Mjöanesi i Skógum, 20
25. Skriðuklaustri i Fljótsdal, — 40
27. - Mýrum i Skriðdal, — 26
28. Ketilsstöðum á Völlum, 23
29. - - Egilsstöðum á Völlum, — 20
4. mars — - Eiðum i Eiðaþinghá, — 110
5. Kóreksstöðum i Hjaltastaðaþinghá, — 35
7. Kirkjubæ i Hróarstungu, — 44
8. Sleðbrjótsseli i Jökulsárhlið, — 36
11. — - Vopnafjarðarkaupstað, 120
12. Skeggjastöðum á Langanesströndum, : ", “ 15
13. Gunnólfsvik á Langanesströndum, — 15
14. Þórshöfn á Langanesi, — 130
16. Svalbarði i Þistilfirði — 50
Mestur hluti fundarmanna voru víðast hvar bændur.
í'anst mér bændurnir yfirleitt sækja fundina vel. Eftir