Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.10.1923, Blaðsíða 62
108 Tímarit íslenskra samvinnufélaga.
Árni bóndi þar og Páll sonur hans. pegar við komum í
Grísatungur, voru hinir allir komnir. Með Hallgrími og
Stefáni á Öndólfsstöðum, sem gistu á Húsavík, kom Bjarni
kaupm. Benediktsson. í Grísatungum var áð dálitla stund,
voru menn kátir og léttir í lund. I Grísatungum og dálítið
þar austur fyrir er rýr hálendisgróður, en þegar lengra
dregur austur á Reykjaheiði, tekur við prýðisfallegt skóg-
arkjarr á stóru svæði. Veður var ágætt og sólarhiti, svo
hestarnir svitnuðu mjög, enda var farið hart, eftir mjúk-
um moldargötum. Af heiðinni sést norður í Kelduhverfi og
Axarfjörð. Við óskuðum þá, að við hefðum mátt verja ein-
um degi til þess að skoða þessar sveitir, en við urðum að
fylgja áætlun.
Eftir 11 tíma ferð komum við í Ásbyrgi, rétt fyrir
sólarlagið. Ásbyrgi er í Kelduhverfi í Norður-þingeyj ar-
sýslu. Samnefndur bær stendur skamt fyrir norðan það, lé-
legt býli að sjá og húsakynni virtust okkur lítilfjörleg. Eft-
ir byrginu liggur ógreið gata, og er nál. 1/2 klt. reið syðst
í það. Einkennilegt er Ásbyrgi, girt hamraveggjum á þrjá
vegu og hóftungan, hár hamrastalli. fyrir mynni þess, en
fráskilið aðalberginu. 1 byrginu er dálítill skógur, en krækl-
óttur og óræktarlegur. Ásbyrgi er tilkomumikið og ein-
kennilegt, og ætti að vera friðað og skóginum sómi sýndur.
Eftir 2 klt. viðstöðu var stigið á bak og haldið í suðurátt.
Ekki minnumst við að hafa lifað dýrðlegri næturstund
en þessa. Nóttin var hlý og björt. Kyrð og ró hvíldi yfir
öllu. Árniðurinn var það eina, sem rauf þögnina. Fjöl-
breytni landsins er töfrandi fögur, svo ferðamaðurinn
hrífst af lotningarfullri aðdáun.
Að Svínadal komum við kl. 4 um morguninn. það er
heiðabýli í orðsins fylstu merkingu. þar býr ekkjumaður,
með þremur börnum sínum, Páll að nafni. Húsakynni eru
þar lítil, og sváfum við í heyhlöðu. Alt veitti bóndi okkur,
sem hann gat af fúsum vilja.
Frá Svínadal lögðum við af stað kl. £P/2 næsta morgun.
Veðrið hélst óbreytt. Náttúrufegurðin var hrífandi. Leiðin
liggur alt af nálægt Jökulsá, eftir þröngum götuslóðum, og