Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.10.1923, Qupperneq 90
136 Tímarit íslenskra samvinnufélaga.
Ef lag á að verða á samgöngum og verslun Héraðs-
búa, hljóta Egilsstaðir að verða hjartað, sem allar æðar
veita blóði að og frá. Samvinna í verslun verður að hafa
sitt aðalból á Egilsstöðum. peir þurfa að verða það fyrir
Hérað, sem aðalkauptúnið er öðrum landbúnaðarhéruðum.
Alt Hérað þarf að sækja nauðsynjar sínar dagleið yfir
fjallvegi, og hvergi er hugsanlegur akfær vegur yfir fjall-
vegina, nema brautin milli Egilsstaða og Reyðarfjarðar.
Mun á þetta minst síðar.
E i ð a r standa á Úthéraði, ásum luktir og innibyrgð-
ir. þar er, eins og allir vita, héraðsskólasetur, þótt stað-
urinn sé á engan hátt vel til þess fallinn. Á Eiðum var eg
tvo daga um kyrt í besta yfirlæti. Kyntist dálítið skóla-
lífinu þar og kennurunum. Mest kynni hafði eg af Bene-
dikt kennara Blöndal og Sigrúnu konu hans. Blöndal á eitt-
hvert hið besta bókasafn, í einstaks manns eigu, hérlend-
is. Fyrir ljúfmensku hans er bókasafnið hinn mesti menta-
brunnur námfúsum nemendum. Frú Blöndal er hin mesta
hannyrðakona, og ber vefnaður hennar mest af. Hún hefir
lagt mikla stund á að rannsaka íslenskan vefnað, og á
nokkurt safn íslensks listvefnaðar og vefjarmynda. Mætti
skólinn illa missa starfskrafta þeirra hjóna.
Eiðaskóli þarf að eignast bróður í hverjum landshluta.
Skólar þurfa að rísa af þjóðlegum stofni, þar sem bændur
og húsfreyjur læra að prýða heimili sín, þar sem gáfaðir
alþýðumenn eiga kost á að leggja undirstöðu sjálfsment-
unar sinnar, finna sjálfa sig og sín hugðarefni, er þeir síð-
ar í lífinu nema betur, með aðstoð bókasafnanna og gera að
sínu tómstundastarfi. Mestur menningarauður íslendinga
er tómstundastarf sjálfboðaliða, verk, sem höfð hafa verið
fram hjá matarstritinu, unnin oftast af mönnum, sem ekki
hafa fengið til þess sérstaka skólamentun. Ef íslensk menn-
ing á að eiga framtíð, á sínum sérstæða þjóðlega grund-
velli, þurfum við að eiga marga menn, sem þannig taka
fram hjá Við höfum ekki efni eða mannfjölda til að eiga
og launa marga sérfræðinga. þessum tómstunda-starfs-
mönnum eiga alþýðuskólamir að hjálpa, það er þeirra að-