Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.10.1923, Blaðsíða 23
Tímarit íslenskra samvinnufélaga. 69
legt í samvinnufélögunum, er nálega eingöngu bundið við
bæina og sjóþorpin. Vitaskuld eru til menn í sveit, sem
á krepputíma eins og þessum eru ekki borgunarmenn fyr-
jr skuldum sínum. En þeir eru hverfandi fáir, og tapið af
þeim nær ekki út fyrir þeirra deild.
Af reynslu þeirri, sem fengin er, má fullyrða, að við
sjóinn þarf meiri áhættutryggingu. þegar vel gengur, þarf
að safna í sjóð til vondu áranna. þetta hafa kaupmenn
líka gert. þeir hafa lagt drjúgan á, og þessvegna haft vara-
forða til vondu áranna, og sinn persónulega gróða að auki.
Eitt af framtíðarverkefnunum verður að finna heppilegt
verslunarskipulag fyrir smáþorpin, skipulag, sem tryggi
íélagsmönnum sannvirði, en gerir ráð fyrir þeirri hættu,
sem stafar af misjöfnu árferði.
Að öllu samtöldu hefir árið 1923 verið þróunarár fyr-
ir kaupfélögin. Hið erfiðasta sýnist vera yfirstaðið. Félags-
menn skilja betur en fyr eðli kreppunnar og taka afleið-
ingunum eins og vera ber.
Mr. May, ritari alþjóðasambandsins, hefir
Samvinnu- í sumar á fundi í Edinborg stungið upp á,
dagur. að ákveðinn yrði sameiginlegur hátíðisdag-
ur fyrir samvinnumenn í öllum löndum, og
lagði til, að það yrði fyrsti laugardagur í júlí ár hvert.
Tillagan er að nokkru leyti miðuð við kringumstæður í
Englandi, þar sem búðum og skrifstofum er að miklu leyti
lokað á laugardögum. Tilgangurinn, að á þessum degi séu
fluttir fyrirlestrar um starfsemi og framtíðartakmörk
stefnunnar, og hjálpað til að auka áhugann og trúna á
málefnið.
Síðastliðið ár hefir mikið verið gert að því
Samvinnudag- að undirbúa stofnun samvinnudagblaðs í
blað í Englandi. Englandi. Hingað til hafa samvinnumenn
ekki treyst sér að ráðast í svo mikið stór-
ræði. peir hafa að þessu látið sér nægja stórt vikublað,
„Cooperative News“. Að gefa út dagblað í stóru landi er
ekki á hvers manns færi. Til þess þarf margar miljónir í
stofnfé. Og ef blaðið fær ekki auglýsingar, þá er vís stór-