Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.10.1923, Blaðsíða 61
Tímarit íslenskra samvinnufélaga. 107
Síra Helgi fylgdi okkur þangað sem vegir skildust, að
þverá og Laxamýri, en þangað var haldið til gistingar.
í Reykjadal er sláturhús, sameign Reykdæla, Bárð-
dæla og Mývetninga. þaðan liggur akbraut til Húsavíkur.
Telja þeir mikinn hagnað að hafa sláturhús svona
nærri sér.
Á Laxamýri skildi Einar Reynis við okkur og fór út
til Húsavíkur með Hallgrími félaga okkar og Stefáni á
Öndólfsstöðum, sem nú var fararstjóri. Einar var með okk-
ur í 5 daga, og lagði hann meira á sig okkar vegna, en
nokkur annar, einkum meðan við dvöldum á Akureyri. Hafi
hann þökk fyrir samveruna.
Við komum seint til gistingar að Laxamýri um kvöld-
ið, því viðstaðan á Breiðumýri og Grenjaðarstað hafði taf-
ið okkur, en eftir þeim tíma sá víst enginn.
Á Laxamýri búa 2 bræður, Jóhannes og Egill, synir
Sigurjóns heitins. þar þótti okkur gott að vera. Jörðin
Laxamýri liggur rétt við Laxárós, út undir sjó. þá jörð leist
ckkur best á af öllum jörðum, sem við sáum í ferðinni. Hún
virðist ókunnugum hafa flesta kosti til að bera, sem ein
jörð þarf að hafa. Byggingar eru að mörgu leyti góðar.
Túnið er stórt og fallegt og út frá því áveituengjar, mikið
véltækar. þar er og laxveiði mikil, eggvarp og dúntekja um
250 pund, mikið og gott beitiland, og síðast en ekki síst
fagurt útsýni. Jörðin er nú metin á 171 hundr. En sjálf-
sagt þarf mikinn mannafla til þess að nota þá jörð til fulls.
það er haft eftir Einari Benediktssyni, að hann hafi sagt
um Skútustaði við Mývatn, að sú jörð væri sveitarprýði,
sveitin sýsluprýði og sýslan landsprýði. Laxamýri er áreið-
anlega sveitar-, sýslu- og landsprýði.
Við höfðum gert ráð fyrir því, að hittast aftur í Grísa-
tungum á Reykjaheiði. Dagleiðin var löng fyrir höndum
norður yfir Reykjaheiði í Ásbyrgi og þaðan að Svínadal í
Kelduhverfi. Við urðum því að hraða okkur frá Laxamýri,
þó margt væri eftir, sem við hefðum gjarnan viljað sjá.
Frá Laxamýri fylgdi okkur tengdasonur Egils, Jón Jóns-
son bóndi í Saltvík. þeim, sem gistu á þverá, fylgdu þeir