Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.10.1923, Blaðsíða 93
Tímarit íslenskra samvinnufélaga. 139
ítök nokkur á Úthéraði, þeirra, sem lengsta eiga sókn til
Reyðarfjarðar.
Kaupfélag Vopnafjarðar hefir haft nokkra
menn í vestustu sveitum Héraðs, en frá því munu menn al-
ment vera að hverfa á Héraði.
Nokkrir menn hafa auk þessa bundist samtökum um
það, að versla við kaupmann einn á Reyðarfirði. Hefir síra
Magnús í Vallanesi forystu þeirra og kallar þessi samtök
,.kaupfélags vísir“, og brosa margir að „kaupfélags“-
nafninu, sem vonlegt er.
Svo má að orði kveða, að mestöll verslun manna á Völl-
um, í Fellum og Fljótsdal sé í kaupfélagi. Skriðdælir, Eiða-
menn, Tungubúar og Úthéraðsmenn mjög skiftir og
blendnir í verslunarmálum, en í Jökulsárhlíð og Jökuldal
versla allir við kaupmenn. Eftir því sem strjál-
býlla er og verri samgöngur, eftir því sem
fjær dregur Fagradalsbraut, eftir því
þver kaupfélögunum máttur á Héraði.
Víðast á landinu, þar sem kaupfélög hafa náð bestum
þroska, hagar svo til, að öllu héraðinu er sjálfgefið að
sækja verslun til sama staðar, svo sem þingeyingum til
Húsavíkur, og Fram-Eyfirðingum til Akureyrar. Allar
þungavörur þessara héraða eru nú fluttar á vögnum upp
um sveitirnar.
Á Héraði eru staðhættir allir aðrir. Engin höfn er inn-
anhéraðs við flóann, heldur verður að sækja alla þunga-
vöru yfir fjallvegi til fjarða niður, eða til Vopnafjarðar.
Hver sveit á sína skemmstu leið til síns fjarðar, sinn forna
fjallveg. Sumii' fara til Reyðarfjarðar og Eskifjarðar. Aðr-
ir Fjarðarheiði eða Vestdalsheiði til Seyðisfjarðar. Nokkr-
ir til Borgarfjarðar eða jafnvel ýmsar leiðir til Vopnafjarð-
ar. Ýmsar verslanir á ýmsum stöðum togast á um verslun
bænda, bjóða flutning: Úthéraðsmönnum á „Sandinn" eða
Upphéraðsbúum á Egilsstaði. Bændur margir taka vörurn-
ar sem næst sér, hvað sem verðinu líður.
Samgönguvandræðin valda því, að kaupfélögin hér eiga
svo örðugt uppdráttar. Kaupmennirnir á fjörðunum eiga