Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.10.1923, Blaðsíða 53
Tímarit íslenskra samvinnufélaga. 99
iandinu, með gaddavír. Upp frá honum er Heljardalur, ill-
ur yfirferðar; eftir honum rennur sanmefnd á, mjög slæm
yfirferðar, með stórgrýtisurð og straumkasti. Ofan við
hana er Heljardalsheiði. Sími liggur yfir heiðina. Var þar
svo mikill snjór, að einn símaþráður var enn í kafi (6.
júlí), og færðin þung. Yfir sjálfa heiðina er rúml. klukku-
tímaferð; hún er því aðeins mjór hryggur. Fjallgarður
þessi skilur Skagafjarðar- og Eyjafjarðarsýslur. Af aust-
urbrún heiðarinnar sést ofan í Svarfaðardalinn. Hann er
injög hrikalegur fremst og líkastur skuggalegu gljúfri til-
sýndar. Fjöllin hengibrött báðumegin og gróðurlaus, en
undirlendi ekkert. þegar við vorum komnir skamt niður
fyrir snjólínuna, komu bændur úr Svarfaðardalnum á móti
okkur: Vilhjálmur á Bakka og synir hans 2. Átti Vil-
hjálmur að verða fylgdarmaður okkar niður á Dalvík. Páll
skildi því við okkur þar.
Svarfaðardalur víkkar eftir því, sem neðar dregur, svo
að neðst er hann allbreiður og dálítið undirlendi.
Fyrsti bærinn, sem við komum að, hét á Urðum; er
það nálægt miðjum dalnum. þar eru sæmileg húsakynni,
öll með torfþökum. Dálítill trjágarður er þar, og í honum
fallegt lævirkjatré.
Dalurinn fríkkar og bygðin þéttist eftir því sem neð-
ar dregur. Víða eru tvær bæjaraðir hvorumegin og standa
svo þétt, að kallast má á milli bæja. par sáum við þéttasta
bygð. Dalurinn er ein sveit, með 100 búendum. Jarðirnar
eru flestar litlar, en sjálfsagt hægar og lífvænlegar.
Næst var komið að Bakkabæ; þar eru betri húsakynni
en annarstaðar í dalnum, og svo rausnarlegur var Vilhjálm-
ur, bóndinn, að sleppa hestum okkar í engjar sínar, með-
an við þáðum hressingu. Nú er verið að leggja akbraut eft-
ir dalnum, og fórum við eftir henni, fyrst að Tjörn, síðan
niður á Dalvík, til gistingar.
Dalvík er nýmyndað þorp, sem stendur við Eyjafjörð-
inn neðst í Svarfaðardal. Ekki er grösugt þar, en bæir
standa á víð og dreif, með dálitlum túnblettum í kring.
Sjávarútvegur er þar nokkur á vélbátum og aflast oft vel.
V