Andvari - 01.01.1976, Side 28
26
FINNBOGI GUÐMUNDSSON
ANDVARI
hlutverk og stöðu hins unga háskóla og kynnzt því, við hverja örðugleika
var að etja. I ræðu, er hann ílutti af svölum Alþingishússins 1. desemher
1922 og nefndi Trúna á ævintýrin, leitar hann stuðnings höfuðstaðarbúa
við stúdentaheimili, sem þá var ráðgert að reisa. En í ræðunni segir hann
m. a.: ,,Þér mcgið umfram allt ekki halda, að stúdentaheimilið sé nauð-
synjamál. Það er allt annað og meira. Það er ævintýri." Og síðar segir hann:
,,Hvað haldið þér, að framtíðin muni þakka oss mest? Ekki malbikun
Laugavegarins, ekki fiskreitina, ekki nauðsynlegustu framkvæmdirnar —
allt þetta verður talið sjálfsagt og mun úreldast og gleymast. Nei, nútíðinni
verður þakkað mest allt, sem hún telur óþarfast: hús Einars Jónssonar, sýn-
ingarskálann, lúðrasveitarbyrgið, það sem vér leggjum til bókmennta og
vísinda — allt, sem er í ætt við hið eina, sem er enn nauðsynlegra en áhyggjur
og umsvif Mörtu.“
Vér sjáum, livað hér hýr undir: hin eilífu átök í þjóðfélaginu um það,
hvað telja skuli nauðsynlegt og þannig hafa forgang — og hins, sem óþarft
er kallað og beðið geti eða sleppa megi. I Iáskóli Islands hefur löngum átt
undir högg að sækja að þessu leyti, og þegar harðnað hefur í ári — svo sem
upp úr heimsstyrjöldinni fyrri — hefur sparnaðarmönnum orðið tíðlitið til
háskólans.
Hvort tveggja þetta, nokkur óvissa um framvindu mála í háskólanum
og löngun Sigurðar til að hasla sér völl, þar sem svigrúm væri meira, hefur
ráðið því, að liann tók 1923 boði Norðmanna um að verða prófessor í
íslenzkum fræðum við Öslóarháskóla.
Prófessor Fredrik Paasche, sá mæti fræðimaður, var hér á ferð 1922
og flutti þá fyrirlestra um eflingu menningarsamskipta Norðmanna og
íslendinga, en Sigurður ritaði grein um hann í Morgunblaðið 11. ágúst
1922. Er ekki að efa, að koma hins norska prófessors hingað og kynni
þeirra Sigurðar hafa átt sinn þátt í stofnun þess embættis við Óslóarhá-
skóla, sem hér um ræðir.
Svo fór raunar, að Sigurður afsalaði sér þessu embætti og sat um
kyrrt heima, en áður en til þess kæmi, ritaði hann langa grein um Háskóla
Islands, er hann lauk við seint í janúar 1924, en prentuð var í Andvara
í maí það ár. Hann getur þess í lokin neðan máls, að ritgerð sín hafi
„því ekki komið til greina við umræður þær um málefni háskólans, sem