Andvari - 01.01.1976, Qupperneq 83
andvari
SIGURÐUR NORDAL
81
félag Reykjavíkur sýndi leikinn fyrst 8. nóvember 1945 og þá án höfund-
arnafns, og á hálfrar aldar afmæli félagsins í janúar 1947 var annar þáttur
hans fluttur einn sér í útvarpinu.
Sigurður lýsir í eftirmála útgáfunnar 1946, er hann nefnir Að leiks-
lokum og dagsettur er á þrettánda dag jóla, hvernig það atvikaðist, að
hann samdi þennan leik. Þegar slaknaði á í stríðslokin og hann hafði sig
einhvern veginn ekki í neitt, greip hann til þessa verkefnis. ,,Fyrir mér
varð hugmynd, sem hafði hvarflað lauslega að fyrir löngu, jafnvel sem
efni í leikrit, þótt ekkert væri þá unnið úr henni, en rifjaðist nú upp við
eftirvæntingu fólks og skraf um komu Esju frá Kaupmannahöfn.
Ég byrjaði að hripa upp fyrsta þáttinn tveim dögum fyrir júnílok" . . .
Hann afhenti síðan Leikfélagi Reykjavíkur leikinn fullsaminn síðla
sumars, en hélt að svo búnu til útlanda.
Leikurinn byrjar og endar á Knarrareyri, gömlum verzlunarstað —
með nýja höfn, sem ekki er fullgerð, einhvers staðar á suðurströnd Islands.
Ovæntan gest ber að garði hjá sr. Helga á Knarrareyri, Jóhönnu, er hann
hafði kynnzt veturinn, sem hann var í Ósló. Hún kemur hinum einhleypa
sálusorgara staðarins úr skorðum, og í 2. og veigamesta þætti leiksins hristir
hún svo upp í honum, að hann er ekki samur maður eftir, og hún raunar
ekki heldur. En út í þá sálma verður ekki farið frekara hér.
Sigurður var einn af stofnendum Vísindafélags íslendinga 1918 og
var forseti þess 1919—20 og 1948—49. Hann var gerður heiðursfélagi á
fimmtugsafmæli félagsins 1968. Hann var kjörinn félagi í fjölmörgum
erlendum vísinda- og fræðafélögum, sem of langt yrði upp að telja, en
vísa má um t. d. í íslenzka samtíðarmenn II, 215. Þar eru einnig taldar
orður, sem honum voru veittar, hæði innlendar og erlendar.
Áður var getið þriggja brezkra háskóla, er kjöru hann heiðursdoktor,
en tveir háskólar á Norðurlöndum urðu ennfremur til að sýna honum þann
sóma, Óslóarháskóli 1938 og háskólinn í Gautaborg 1941.
Háskóli Islands sæmdi Sigurð á háskólahátíð í október 1966 nafn-
hótinni doctor litterarum Islandicarum, en hana höfðu hlotið þrír íslenzkir
°g tveir erlendir menn og hún aðeins verið veitt fyrir frábær afrek á sviði
íslenzkra fræða.
6