Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1976, Side 134

Andvari - 01.01.1976, Side 134
132 SIGURÐUR ÞÓRARINSSON ANDVARI hljóti að vera mjög áberandi eiginleiki með íslendingum. Þeir eru af norsku og keltnesku bergi brotnir, 'þeir eru dreifðir um eyðilegt norrænt land, umlokið gráu norðurhafi. Bæði á láði og legi eru þeir nógsamlega minntir á, að náttúru- öflin láta sig mannleg örlög engu varða. Hvað bændurna áhrærir, þá er líf þeirra einmanalegt, bvort sem þeir búa við sjó eða inn til dala. Þeir hafa fátt til dægrastyttingar um fram það sem þeir geta sjálfir fundið sér til aíþreyingar. 'Sumurin eru stutt og köld, og þrátt fyrir mikla vinnu þeirra myndi flestum finnast þau lífskjör kröpp, sem þeir bera úr býtum. Þegar tillit er tekið til þessa, hvernig geta þeir þá verið öðruvísi en dauflegir, fámálugir og skapstirðir? Þannig spurði ég sjálfan mig iðulega, þegar ég sat í baðstofu einbvers afskekkts sveitabýlis og hlustaði á storminn æða yfir móa og mýrar og regnið lemja litlu gluggarúðurnar. Fámálugir eru þeir, margir bverjir, og gestrisni þeirra víðsfjarri því að vera uppáþrengjandi. Eg var næstum farinn að kvíða fyrir binni kurteislegu kveðju: „Gerið svo vel,“ sem viðhöfð var, þegar mér var vísað inn í gestaher- bergi að lokinni dagleið, en þessa kveðju átti maður jafnvísa og að nótt kæmi eftir dag, og svo var dyrunum lokað með bægð. Síðan heyrðist bljóðlátt fótatak inn eftir löngum, dimmum göngum, er lágu inn til vistarveru fjölskyldunnar, og annarri hurð heyrðist lokað, svo var höfug þögn, umlukin veggjum her- bergisins, þar sem ég var aleinn og ekki heyrðist annað hljóð en tif stunda- klukkunnar. Áður en ferð minni lauk, var mér orðið ljóst, að það var af umhyggju- samri kurteisi, sem ég var látinn vera út af fyrir mig. Eg var gestur í landi, þar sem hvorki eru vertshús né hótel nema í nokkrum bæjum og kauptúnum við sjávarsíðuna. Á langferðum er því sá einn kostur að koma við á sveitabæjum, þar sem gisting er ávallt fúslega til reiðu. En þar eð ég er bæði útlendingur og gestur, ganga þeir, er hýsa mig, eðlilega út frá því, að ég vilji vera jafnmikið útaf fyrir mig eins og ég hefði herbergi á hóteli. Auk þess kann ég ennþá lítið sem ekkert í íslenzku, og það væri vandræðalegt, að gestur og gestgjafi sætu þöglir hvor gegnt öðrum allt kvöldið. Önnur ástæða var og fyrir því, að gestgjafar mínir og fjölskyldur þeirra létu svo lítið sjá sig. Það var orðið mjög áliðið sumars og allir, sem vettlingi gátu valdið, voru að heyskap myrkranna á milli. Þegar veður er gott, er ekki óvenjulegt,-að baendur vinni að heyskap ■ tólf til- fjórtán klukkustundir á- dag. Eg var oft búinn að taka á mig náðir, þegar gestgjafi minn kom heim af engjun- um. Sumir ferðábókahöfundar hafa kallað fslendinga lata. Sabine Baring-Gould
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.