Andvari - 01.01.1907, Side 35
Tómasar Sæmundssonar.
29
sig upp að morgni þess 16. október [1813] til að
leita að dauðanum við Leipzig. Voru Franskir komn-
ir þangað áður og búnir að talca sér stöðu [þar] ;
fengu því hinir enga hvíld, er þeir komu þreyttir al'
göngunni um bádegisbilið, og hafa það verið óblíðir
tímar. Var þá einasta til hugdirfðar, að Napóleon
var áður heldur farinn að fara lialloka og var að
hörfa undan, því fyrir þrem vikum skeði hrakfallið
við Kulm í Bölunen. — —
Þegar nær dregur Dresden fer landið að verða
ósléttara; fara nú að koma nokkurs konar liolt, og
hafði ég hingað lil elcki þvílíkar ójöfnur séð á hinu
þýzka meginlandi. Eru liéruð þessi fögur og hlómleg;
innbúarnir eru saman í þorpum og hafa enga stángl-
ings-bæi til og frá um landið og kann að vera nokk-
ur hundruð eða alt að þúsund innbúa í hverju þorpi,
og heyrir þar undir alt landið umhverfis, og er svo
raunar nokkru örðugra, því að ærið langt getur orð-
ið á þá akrana, sem utast liggja ; aftur er svo skemti-
legra; er hverjum þorpsbúa at'mældur sinn l)Iettur.
Ekki er í þorpum þessum annað fólk en landyrkju-
menu og þvílíkir handvei'ksmenn, sem slíkum eru
ómissanlegastir; í hverju þorpi er einn almúgaskóli
með kennurum og ein kirkja og prestur. Lítur svo
út sem fólk sé hér velmegandi, enda heíi ég hvergi
séð álitlegri þorp eður skipulegar niður röðuð; liggur
oft vegurinn gegnum þau endilöng og er ei nema sú
eina höfuðgata, en húsin til beggja lianda við hana,
svo að stafnarnir, en ekki hliðarveggirnir, snúa að
veginum og eru tveir og tveir ol'tast jafnsíðis og sund
á milli, sem steinveggur gengur yfir um milli hvorra-
tveggja enda húsanna og tengir saman gallhlöðin.
Á vegg þeim, er fram snýr, er hlið, og kemur þá inn
í garðinn milli húsanna og má úr honum ganga inn
í húsin til beggja handa, en sé hliðið lokað vefðnr
ekki komist inn í húsin að ulan. Færi betur á, að