Andvari - 01.01.1907, Side 37
Tómasar Sæmundssonar.
31
vegurinn upp með lienni að sunnan. Liggur Meissen,
staður með 9000 íbúum, er við komum næst til, á
suðurbakka hennar, og áðum við þar langan tíma.
Er staður þessi lielzt markverður vegna tveggja
hluta.dómkirkjunnar ogporcelains-verksmiðjufsinnar],
sem bezt er á Þýzkalandi, og kannske á livergi sinn
líka. Dómkirkjan er stór og bygð á gotneskan bátt,
liggur hún uppi á hamri og sér maður bæinn þaðan
ilatan undir fótum sér. Hún liefir ýmislegt merki-
legt inni að halda. Fórum við líka efst upp í turn
hennar og er þaðan víðsýni mikið, — má þaðan vel
sjá Dresden. Porcelainssmiðjan er sem kirkjan stór
hygging og fornfáleg; stóð upp af henni reykjar-
mökkurinn á ótal stöðum; erfiða þar alt að þrjú
hundruð manns. Porcelains-föt og spilkómur þeklcja
allir, því að það eru liin algengustu og þokkalegustu
matarílát og borðáhöld; bændur brúka það eins og
kongar, og tekur þeim ekkerl fram nema silfur- og
gullker, sem enda kongunum verða of kostnaðarsöm.
Eru ei nema 100 ár síðan porcelains-smíði var upp-
fundin í Evrópu og skeði það í Meissen1; höfðu Kína-
búar og Japángar fundið upp á því löngu áður, en
haldið heimullegri aðferðinni. Vildu Saxar einnig
gera það, en þeim tókst það ekki lengi; þess vegna
eru [nú] í llestum löndum porcelains-verksmiðjur, er
til þeirra allvíða mjög vandað, enda útheimta þær
mikinn kostnað og margvísleg handaverk og kunnáttu.
Eru lil þess valdar hinar beztu leirtegundir; úr hin-
um grófari eru gerðir veggja- og þaksteinar, leirbrús-
ar og skálar, tóbakspípur o. 11. Er leirinn fyrst
hreinsaður svo vel sem má; þar eftir bakaður og
malaður svo smátt sem hveiti, þá er hlandað saman
þar við gler- og gipstegundum, sem eins eru brendar
1) í frumritinu stendur »Dresden«, en það mun eiga að vera »Meis-
sen«, enda virðist það, livernig liér er að orði koniist (»skeði það og i .
J)r.«) benda á að bæjarnafnið sé misskrifað.