Andvari - 01.01.1907, Page 114
108
Fiskirannsóknir.
langt tímabil, með merkingum, sem þegar hafa verið
gerðar á þorski og skarkola, eða á annan liátt.
Fréttaritarar blaða gætu gert málefni þessu góðan
greiða með því að skýra sem ýtarlegast frá aflabrögð-
um, hver í sínu héraði, bæði hlutahæð, aflasvæði,
hverskonar fiskur aílaðist o. íl.
I. Ferð nieð hotnvörpuskipinu »Coot« og liugleið-
ingar um hotnvörpuveiðar.
I. Ferð með Sumarið 1899 fór eg ferð út í Faxaílóa
„Coot“. rneð botnvörpuskipi, eins og sagt er frá í
skýrslu minni fyrir það ár. Nú bauðst mér aftur
tækifæri til að koma með botnvörpuskipi á hin sömu
svæði og þótti mér vænt um bæði að sjá þær breyt-
ingar er kynnu að vera orðnar á íiski í Flóanum,
eftir allan þann usla er botnvörpungar liöfðu gert
þar á hinum 7 árum, er liðin voru síðan og svo að
fá tækifæri til að vera á sjó með alíslenzkri skips-
höfn, en það hafði eg aldrei verið síðan eg var ung-
lingur og aðeins á opnum bát.
Skipið sem eg fór með var botnvörpungurinn
»Coot« frá Hafnarfirði. Eg hafði ætlað mér að vera
kyrr í Reykjavík allan júlímánuð til að skoða relc-
netasíld þá, er síldarskipið »Kristján« var að veiða í
kringum Snæfellsnes um það leyti. Rjóst eg við að
geta þá ákveðið nákvæmlega, livenær hrygning síld-
arinnar á þeim svæðum byrjaði, en áður en mig
varði, hætti skipið veiðum kringum 10. júií. Fór eg
þá til skipstjórans á »Coot«, hr. Indriða Gottsveins-
sonar og beiddist þess að mega vera með skipinu
um tima, og varð hann fúslega við beiðni minni, að
fengnu leyfi eigenda skipsins. En af því að veðrátta
var mjög óstöðug og vindasöm um miðbik mánað-
arins, varð ekki af að eg færi með fyrr en 22. júlí