Andvari - 01.01.1907, Blaðsíða 9
Páll Jakob Briem.
3
ingsel'ni. Það er ótítt, eða var þá, að lögfræðisstúd-
entar, kæraust í náin kynni við prófessora sína við
háskólann, því ilestir notuðu ieiðbeinanda, en hirtu
litið um fyrirlestra eða yíirheyrslur prófessoranna;
en að Páll hafi líka rækt þá, má meðal annars sjá
af því, að liann komst í náin kynni við prófessor
Goos, síðar eitt skeið íslandsráðgjafa, sem þá var
lielzli kennari í lögum við háskólann, og talinn er
meðai merkustu lögfræðinga Dana. Þann 7. júní
1883 tók Páll embættispróf í lögum og fjekk 2. eink-
unn, (skorti aðeins laud í einni fræðigrein til fyrstu
einkunnar), og fór þá samsumars út til íslands og
var skrifari á alþingi það sumar.
Að áeggjan próf. Goos og með styrk, er hann
hafði útvegað Páli, sigldi hann aptur um haustið, til
þess að búa sig undir próf á ný. Það leysti hann
af hendi næsta sumar 5. júní 1884 með góðri fyrslu
einkunn. Að því Ioknu varð hann fulltrúi hjá yíir-
rjettarmálafærslumanni Conradsen, en hafði að öðru
leyti lítið að starfa. Um þessar mundir voru deilur
miklar milli íslenzkra námsmanna í Höfn, deilur
sem að ýmsu leyti voru áframhald ai' sundurlyndi
og deilum sömu manna á milli í skóla, og þá höfðu
mjög Iosað um samheldni og bræðralag pilta á milli.
Þó nú þessar deilur væru hvorki merkilegar að upp-
runa eða efni, þá voru þær þó um þetta leyti mjög
liarðar, og sóttar af miklu kappi og æskufjöri al'
heggja hálfu. Þeir Páll og Finnur, sem enn bjuggu
saman, þá báðir kandidatar, veturinn 1884—85, voru
aðalforingjar annars lloltksins, og var því opt gest-
kvæmt þá um veturinn í híbýlum þeirra í Fjólu-
stræti af fylgismönnum þeirra. Var því lítt næðisamt
fyrir þá að gefa sig við vísindalegum iðkunum, sem
þeir þó báðir ætluðu að fást við. Þó þýddi Páll um
veturinn »Dýravininn« 1. hefti, og samdi ritgjörð um
Grágás, sem kom út í Tímariti bókmenntafjelagsins.