Andvari - 01.01.1907, Side 107
og íslenskan lýðháskóla.
101
lengi á skynsamlegan hátt. í*að þai'f því mikla
mentun lil þess að koma á góðum lýðháskóla hjá
oss, því að um leið þarf að ryðjanýjabr a u t.
En það er bæði skömm og mikill skaði fyrir ís-
lendinga, að þeir skuli hvergi láta kenna sögu sína
sæmilega, og er merkilegt að þeir skuli eigi íinna til
þess.
Ef vjer viljum hefja þjóðina á nýja framfara-
braut, verður eitt hið fyrsta verk vort að vera að
setja góðan lýðháskóla á stofn, þar sem nemendurn-
ir læri vel sögu vora, fái brennandi ást á ættjörð-
unni og alvarlega siðferðislega þeklcingu á mannlif-
inu. Þá læra þeir að meta manngildi sitt og verða
miklu nýtari og betri menn en ella.
En þá er hinn rjetti grundvöllur er lagður og
nemendur frá lýðháskólanum dreifast út um land-
ið, geta menn stofnað fleiri lýðháskóla, ef þörfin
krefur. En fyrst verður að koma upp einum alls-
herjarlýðháskóla í Iandinu, þar sem saga landsins er
kend rækilega og lesið er hið besta, sem íslenskur
andi hefur alið. Til þess þó að enginn misskilji orð
min, skal þess getið, að jeg tel rjett að styðja lýð-
háskólann á Hvítárbakka, þótt fullkomnari lýðhá-
skóli væri settur á stofn. Ekkert orð mitt er sagt til
þess að spilla í'yrir neinum. Stofnandi skólans Sig-
urður Þórólfsson á sannarlega þakkir skyldar fyrir
viðleitni sína og áhuga, og skóli hans getur gert mik-
ið gagn, þótt hann sje alls eigi fullnægjandi og geli
eigi verið það. Fyrir því má eigi láta sitja við liann,
enda segir sig sjálft, að kensla i sögu þjóðarinnar,
sem á að vera aðalnámsgreinin í hverjum lýðháskóla,
g e t u r eigi verið í neinu viðunandi lagi í þeim
skóla, fremur en í öðrum skólum landsins. En hún
getur batnað, þá er góð kensla í sögu þjóðarinnar er
komin á í landinu sjálfu.