Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1914, Blaðsíða 8
2
ÓLAFUR s. thorgeirsson:
Á þessu ári teljast liðin vera:
frá Krists fæðing’u..................................1914 ár
frá sköpun veraldar............................. 5881 ár
frá upphafi Islandsbygðar............................1040 ár
frá siðabót Lúters................................... 397 ár
Árið 1914 er sunnudag’sbókstafur D.
Gyllinital 15.
Milli jóla og langaföstu eru 8 vikur og 3 dagar.
MYRKVAR 1914.
Árið 1914 verða fjórir myrkvar, tveir á sólu og tveir á tungli.
1. Sólmyrkvi 24. febr., ekki sýnilegur hér, en aftur sýnilegur á
mikluin hluta Kyrrahafs strandarinnar.
2. Tunglmyrkvi nóttina milli 11. og 12. marz. Sýnilegur hérfrá
byrjun til enda.
3. Sólmyrkvi (almyrkvi) 21. ágúst, og byrjar með sólaruppkomu.
Sýnilegur í norð-austur hluta Bandaríkjanna og í Canada.
4. Tunglmyrkvi 4. sept. Sýnilegur í vesturhluta Norður-Ame-
ríku, á Kyrrahaflnu, Austur-Asíu og Ástralíu.
Árstíðirnar. í VTestur-Canada er talið að
Vorið byrji........ ...........21. marz
Sumarið.......................21. Júní
Haustið..................................23. september
Veturinn.......................22. desember
Tunglið
Fylgistjarna jarðarinnar er tunglið. Þvermál þess er 2,163
mílur og fjarlægð þess frá jörð vorri 288,000 enskar mílur. Braut
sína umhverfis jörðina gengur það á því tímabili, sem alment er kall-
að tunglmánuður; er það tímabil alment talið 28 dagar, en er í raun
réttri 27 dagar og 8 klukkustundir, eða rétt um það bil.
Um tímatalið
Forn-Egyptar skiítu degi og nóttu í 12 kl.-stundir hvoru, — og
hafa Gyðingar og Grikkir eftil vill lært þá venju af Babýlóniu-mönn-
um. Það er sagt, að deginum hafi fyrst verið skift í klukkustundir
árið 293 f. Kr., þegar sólskífa fyrst var smíðuð og sett upp í Quirin-
us-mustirinu í Róm. Þangað til vatnsklukkurnar voru uppfundnar
(árið 158 f. Kr.), voru kallarar (eða vraktarar) viðhafðir í Róm til að
segja borgarbúum hvað tímanum liði. Á Englandi voru vaxkerta-
Ijós hörð fyrst frameftir, til að segja mönnum, hvað tímanum liði.
Var áætlað að á hverri klukkustund eyddust 4 þumlungar af kert-
inu. Hin fyrsta stundaklukka (tíma-mælir—sigurverk) í líkingu við
þœr sem nú tíðkast, var ekki fundin upp fyr en árið 1250. Forn-
menp á Norðurlöndum töldu flestir uð dagur byrjáði með upprás
sólar. Aþenumenn og Gyðingar töldu hann byija á sólsetri, og
Rómverjar, eins og vér, á miðnætti.