Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1914, Blaðsíða 84
74
ÓI.AI-'ÚR S. ‘TMOÍÍGElRSSON í
katoon fSaskJ, Gu'örún kona B. Matthews (sbr. þátt B. M.J.
Móöir þeirra lifir enn og er hjá Gísla syni sínum.
BJARNI HHLGASON er Mývetningur. Faöir hans var
Helgi Jónasson frá Grænavatni. Kona Bjarna var Halldóra
Bjarnadóttir bónda á Vöglum í Fnjóskadal, Jónssonar prests
Þorsteinssonar frá Reykjahlíð; er hún nú dáin (á. 1911J.
Bjarni flutti vestur um haf um 1890, settist fyrst að í
Argyle og flutti svo þaðan hingað í Siglunesbygð og hefir
búið hér síðan. Kom hann hér bláfátækur, en nú eiga þeir
feðgar í félagi líklega stærsta og mest verða búið í bygðinni.
Synir hans, Benedikt, Jón, Björn og Sigurður, eru allir i fé-
lagi við hann og hafa numið lönd umhverfis hann; en fimti
sonur hans, Helgi, er lengstum í Argyle-bygð og vinnur þar
bændavinnu. Einkadóttir Bjarna, Solveig, gegnir húsmóður-
störfum hjá föður sínum, síðan móðir hennar lézt.
Bjarni er með greindustu mönnum, en lætur lítið á sér
bera, og er óhlutsamur um annara hagi, nema þegar hann
réttir hjálparhönd, og hefir hann það lítt í hámælum. Hann
er glaðlyndur og góðkýminn og vinsæll. Engan þátt tekur
hann í almennum málum, en þegar hann er á mannfundum
og hlustar á ræður manna, er glampi í augnaráði hans
vottur þess, að hann skilur vel orð og framkomu þeirra, sem
fremstir ganga.
METHÚSALBM GUÐMUNDSSON er Mývetningur að
ætt. Faðir hans var Guðmundur Tómasson frá Kálfaströnd,
en móðir hans var Kristín Jónsdóttir bónda á Grænavatni.
Var hún móðursystir Sigurgeirs Péturssonar, sem um er ritað
i þessum þáttum. Kona Metúsalems er Jakobína Jónsdóttir
Tómassonar frá Kálfaströnd. Einkasonur þeirra Kjartan
býr með þeim, efnilegur dugnaðarmaður. Metúsalem
kom hér vestur 1894, var fyrst í Argyle-bygð, og flutti svo í
Narrows-bygð og hefir búið þar síðan, og er vel efnum búinn.
Metúsalem var fjörmaður og giaðlyndur og heldur þeim
einkennum vel í ellinni. Hann ann öllu, sem íslenzkt er og
er vinsæll. Munu þeir fáir í bygðinni, sem ekki víkja hlýlega
að “gamla Sala”, þegar fundum ber saman.