Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1914, Blaðsíða 128
118
ÓLAFUR S. THORGEIRSSON
þjónaöi til i. jan. 1901; meölimir safnaöarins voru þá 130.
Á kirkjuþinginu 1900 í Selkirk var Alberta-söfnuöur tekinn
inn í kirkjufjelagiö. Næsta ár, 1901, rjeö safnaöarnefndin
séra Jón Clemens einn mánuö til aö þjóna Alb.söfnuöi; kom
hann norður 15. nóv. og þjónaði söfnuðinum, sem um var
samið; ferðaöist hann um alla byggöina og skrifaöi menn í
söfnuðinn, um 60; hjelt einnig sunnudagsskóla, meðan hann
dvaldi hjer. — Mjög skiptust menn í skoðunum um safnaöar-
málin, og margir voru þeir, er aldrei gengu í söfnuðinn, sem
sjá má af safnaðarmeölimatöiu, sem aldrei mun hafa verið
meir en 200. Margir munu þeir hafa veriö, sem höföu þá
skoðun, að byggöarbúar væru þá enn ekki í færum efnalega
aö sinna þeim málum svo vel væri, og sást það síðar, að sú
skoðun haföi við nokkuð aö styöjast. Næsta ár, 1902, var
á ársfundi safnaðarins samþykkt, að ráöa séra Pétur Hjálms-
son nokkra mánuði, til að þjóna Alberta-söfnuði; mun séra
Pétur þá hafa verið trúboöi kirkjufélagsins; kom hann þá
norður 15. okt. 1902 og þjónaði söfnuöinum þá ijó mánuð.
Árið 1903 kom sjera Pjetur aftur seint í sept. og var til 20.
des. Á þessu sumri sendi Alberta-söfnuður fulltrúa á kirkju-
þing, Gísla Eiríksson. Á ársfundi safnaðarins 12. dag jan.
1905, snerust umræðurnar um það, að ráða ársprest; haföi
þaö mál áöur komið til umræðu, en ekki náö fram að ganga;
er svo að sjá, sem ekki hafi allir verið samhuga á fundinum;
mun hinum hyggnari mönnum þá, sem fyr, ekki hafa sýnzt
ráð að halda ársprest, með hliðsjón af fjárhag safnaðarins.
Munu þeir S. Goodman og B. Björnsson hafa þá gjört þá
tillögu, “að ráða enn prest, aðeins um fáa mánuði”; mun hún
hafa verið samþykkt af meiri hluta þeirra, sem á fundi voru.
Að þeirn úrslitum gazt þeim lítt. sem ákveðnastir voru með
fasta prestsþjónustu. Kom þá fyrir, það sem sjaldan skeð-
ur, aö fundurinn ónýtti þessa sýna eigin samþykkt og tók
máliö til umræðu að nýju. Kom þá fram tillaga þeirra Arna
Pálssonar og Jóhanns Björnssonar, að ráða ársprest frá 1.
júlí það ár, og náði hún samþykkt meira hluta. En sú raun
varð á, að þessi tillaga gekk of langt. Var þá séra P.
Hjálnisson formlega ráðinn til ársþjónustu; kom hann norð-
ur 12. júlí 1905. ásamt konu sinni; tók hann þá við þjón-