Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1914, Blaðsíða 83
álmanak 1914.
72
ei'u sveitarbót. Hann ’nefir ásamt Geirfinni syni sínum verið
lielzti hvatamaður þess að hefta vínnautn í bygðinni og stofna
Goodtemplarafélagiö hér. Er þeim málurn svo komiö aö tals-
veröur meiri hluti æskulýösins er í þeim hópi með töluveröum
nhuga. Einnig var Sigurgeir með helztu forgöngumönnum
þess, aö hér var stofnað lestrarfélag og var formaður þess
fyrstu árin. Hann fylgir meö einlægum áhuga öllum hreyf-
ingum í íslenzku þjóðlífi, bæði heima á íslandi og hér vestra,
og er ætíð reiðubúinn að leggja lið til góðrar hluttöku í mál-
um þeirn, er Vestur-íslendingar vilja styrkja lieima á íslandi.
Sigurgeir er nú rúmlega sextugur að aldri, en ern og nokkuð
hraustur enn, og er með réttu talinn með nýtustu bændum
bygðarinnar.
GEIRFINNUR S. PÉTURSSON, sonur Sigurgeirs, sem
um er ritað hér að framan, hefir bú í félagi við föður sinn og
er á sama heimili. Kona hans er Jóhanna Guömundsdóttir
bónda Jónssonar við Dog Creck P.O., sem um er ritað í þess-
um þáttum. Geirfinnur er greindpr vel og hefir aflað sér í
ýmsu talsverörar þekkingar. Hann er fjörmaður og glað-
lyndur, vel máli farinn bæði á ensku og íslenzku. Hann hefir
nú seinni árin verið við gripakaup, bæði fyrir sjálfan sig og
aðra, og nnín hugur hans hneigjast fult svo mikið að verzlun
eins og búskap. Hann hefir verið atorkusamur formælandi
bindindismála í bygðinni, og orðið vel ágegnt.
GUÐMUNDUR BJARNASON LUNDAL, sonur Bjarna
er lengi bjó í Brautartungu í Lunda-Reykjadal. Kona Guð-
mundar Lundals var Guðrún Gísladóttir Þorsteinssonar
prests á Hesti. Guðm. Lundal flutti vestur um haf 1887 frá
Arnþórsholti í Lundareykjadal; var fyrst 1 ár i Winnipeg,
flutti siðan til Nýja Islands og bjó eitt ár í Breiðuvíkinni; var
bær hans nefndur “Finnmörk”. Þaðan flutti hann í Geysis-
bygð, reisti þar bæ og nefndi “Öxará”. Þaðan flutti hann í
Narrows-bygð og bjó þar unz hann Iézt 1. Okt. 1901. Börn
Guðmundar eru þessi: Gísli bóndi í Álftavatnsbygð, Árni
gistihússeigandi við Mulvey Hill, Jón verzlunarmaður í Sas-