Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1914, Blaðsíða 134
124 ólafur s. thorgeirSsóN i
ei lægra en 20 cts. Reikningsskil hans hafa veriS hin beztu,
sem á verSur kosiö, og aldrei munu bændur hafa selt smjör
sitt meö jafn-góðum kjörum sem næstliðin missiri. — Fám
árum síðan er Mörkeberg tók við stjórn og umsjá á verk-
stæðinu, var það byggt að nýju, stærra og vandaðra en áður;
er það nú metið fjögur þúsund dala virði með tilheyrandi á-
höldum, sem öll eru vönduð og nýleg; er það áreiðanlega D.
Mörkeberg að þakka, að allt er í góðu ástandi. Sumum
kann að hafa fundizt, að D. Mörkeberg vera kröfumikill og
ekki hlífa bændum við dýruni verkfærakaupum; en svo
rnunu flestir viðurkenna, að svo hlaut að verá; hann er ó-
efað fyrir flestum smjörgerðarmönnum að kunnáttu og vand-
virkni, og vill ekki annað, en það, sem hann vinnur, sje af
fyrsta flokki að útliti og gæðum, og er það eigendunum einn-
ig bæði til hagnaðar og sóma, og sje þessa gætt, 'verður þaö
eölilegt og sanngjarnt, að hann vilji hafa fullkomin og vönd-
uð áhöld að vinna með.
í stjórn fjelagsins sitja nú: Kristján Jónsson, Björn
Björnsson, Guðm. Thorlacksson, Pétur Thompson og Gísli
Eiríksson, en skrifari og fjehirðir er síra Pjetur Hjálmsson.
RitaS í júli 1013.
FENSALAFJELAGID.
Á landnámsárunum, fram yfir 1900, voru skólahúsin
elstu að Hóla og Tindastól, notuð fyrir samkomu-
hús byggðarinnar og alla þá mannfundi, er voru
fjölmennari en svo að haldnir yrðu í bændabýlum. Iín eftir
því sem árin fjölguðu, varð vöntun á samkomuhúsi tilfinn-
anlegri, einkum þó, þegar menn af fleiri þjóðflokkum tóku
að flytja hingað. Til Jiess að ráða bót á þessu, var myndað
hlutafélag, nær því eingöngu ai ungum mönnum árið 1902.
Stofnfundur þess var haldinn 22. nóv. það ár; á þeim fundi
var kosin stjórn fjelagsins. Hinir fyrstu stjómendur voru:
G. E. Johnson, forseti; G. Stephenson, skrifari og St. K.
O. Kristinsson, fjehirðir. Byggði þá fjejagið áður langt liði
samkomuhús, og keypti undir það bæjarjörð á Markerville;
húsið var að stærð: lengd 40 fet, breidd 24 fet, með viðbygg-
ingu að lengd 24 fet og 12 fet á brcidd. Húsið var svo nefnt: