Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1914, Blaðsíða 108
98
ÓLAFUR s. thorgeirsson:
dóttir Benjamínssonar, er lengi var á Skipalóni meS í>or-
steini Daníelssyni, “góSur smiöur á málm og járn”. En
móðir Pálínu var Helga Jörundsdóttir, ættuíS úr Hörgárdal.
Björn Beck fluttist vestur um haf 1902, en kona hans kom
ári síðar. Hann flutti til Moose Horn Bay áriö 1911, nam
þar land og býr þar síöan.
PÁLL GUÐMUNDSSON, skósmiður, sonur Guðmund-
ar Guðmundssonar, bónda og skipstjóra frá Siglnuesi í
Hvanneyrarhrepp í Eyjafjarðarsýslu. Móðir Páls var
Hólmfríður Jónsdóttir frá Siglunesi í sörnu sýslu. Kona
Páls er Sigríður Petrea Ólafsdóttir, ættuð úr Ólafsfirði; er
hún fósturdóttitr Björns Beck og konu hans, er um er ritað
hér á undan. Móðir hennar hét Sigríður, ættuð úr Ólafs-
íirði. Páll fluttist vestur haf árið 1906, flutti til Moose
Jdorn Bay frá Baldur í Argyle-bygð, Man., árið 1911, nam
þar land og býr þar síðan.
JÓEL GISLASON Magnússonar bónda á Landamóts*
seli i Þingeyjarsýslu. Móðir Jóels var Aðalbjörg Björns-
dóttir frá Bakka á Tjörnesi í sömu sýslu. Kona Jóels er
Kristbjörg Guðmundsdóttir frá Laugaseli í Þingeyjarsýslu.
Jóel fluttist vestur um haf árið 1900 frá Bakka á Tjörnesi í
Þingeyjarsýslit. Var fyrst í Argyle-bygð og flutti þaðan
til Moose Horn Bay 1907(?) og nam þar land og býr þar
síðan.
SIGURDUR EIRIKSSON EYFJÖRÐ. Faöir Sigurö-
ar var Kristján Eiríksson, bónda á Veigastöðum í Svalbarðs-
strandarhrepp i Eyjafjarðarsýslu. Móðir Sigurðar var
Björg, ættuð úr Fnjóskadal í Þingeyjarsýslu. Kona Sig-
urðar er Bergljót Jónasdóttir, bónda í Yztu-Vik í Þingeyj-
arsýslu. Flutti vgstur um haf 1905 og hefir numið land og
býr við Moose Horn Bay.
NORSTEINN GUÐMUNDSSON ÍSDAL Guðntunds-
sonar bónda í Borgarhöfn í Austur-Skaftafellssýslu. Móðir
Þorsteing var Sigríður Bjarnadóttir frá Skaflafelli í Öræf-