Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1914, Blaðsíða 118
108
ÓLAFUR S. TIIORGEÍRSSÖN I
konu Jóns frá SleSbrjót, var Mekkín Jónsdóttir bónda á
Hrafnabjörgum í JökulsárhlíS, Magnússonar bónda á
sama bæ.
Þau Jón og Guörún giftust 14. Júlí 1876; eiga þau 7
börn á lífi, 3 sonu, er heita: Páll, GutSmundur og Jón, og 4
dætur, er heita: Björg, Ragnhildur, Helga og Ingibjörg.
Elzta dóttir þeirra, Björg, er gift ljósmyndara Bjarna Þor-
steinssyni bónda Magnússonar frá Höfn í Borgarfiröi í
Noröur-Múlasýslu.; þau eru búsett í West Selkirk. Börn
þeirra eru 5 og heita: Jón, Þorsteinn, Jóhann Magnús,
Anna og Guörún Helga Inghildur.
Jón byrjaöi búskap áriö 1876 og bjó fyrst í Bakkageröi,
síöan á Ketilsstööum; þaöan flutti hann að Ilúsey í Hró-
arstungu og bjó þar þrjú ár; þaðan flutti hann að. Sleð-
brjót og bjó þar 3 ár, þá aftur aö Bakkagerði og bjó þar 3
ár; þá enn aftur aö Sleðbrjót og dvaldi þar 3 ár. Haustið
1900 flutti Jón frá Sleðbrjót til Vopnafjaröar verzlunar-
staðar og hafði þar gistihús án vínsölu. Páll amtmaöur
Briem neitaði Jóni um leyfi til aö hafa matsöluhús, og lét
höföa mál gegn honum fyrir aö hafa gistihús. Jón vann
það mál bæöi fyrir héraðsrétti og yfird.ómi; máliö kostaði
landssjóö á annað hundrað krónur.
Búskapur farnaðist Jóni allvel fyrstu árin, fram að
1883, en þá kom voðalegt harðindaár um Austurland. Uröu
þá margir nær því aö eyðileggja gripastofn sinn. Áriö
eftir tók Jón til ábúðar stóra jörð, keypti þar hús og gripi,
og náði aldrei eftir það traustum grundvelli undir bú sitt;
hafði oft mikið í veltunni og lánstraust að því skapi. —
Árið 1903 varð liann gjaldþrota og flutti þá vestur um haf.
Borgaöi Jón Sigurðsson á Mary Hill fargjald fyrir alt
hans skyldulið, börn og barnabörn, og fargjald fyrir Guð-
mund bróður Jóns og fjölskyldu hans. Var það alt til sam-
ans um 20 manns; naut Jón Sigurösson lítillega annara
hjálpar til þess; mun það eins dæmi aö maður, sem ekki
getur talist ríkur, hafi veitt svo mikla hjálp í þeim sökum
og telur ritari þessara lína það þess vert, að þess sé getið í
landnámsþáttunum.
Næstu tvö árin eftir komu sína vestur dvaldi Jón hjá
nefndum Jóni Sigurðssyni með fjölskyldu sína; var Guð-