Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1914, Blaðsíða 78
68
ÓLAFUR S. THORGEIRSSON !
Mathews er þessi: Áriö 1899 fluttist hann í Birch Island
('BirkieyjuJ og l>yrjaÖi þar húskap, stundaöi niest fjárrækt og
fiskiveiöi, og aflaöi sér niikilla peninga með hvorutveggja.
Bú haföi hann þar þangaö til áriö 1908 aö hann flutti alfar-
inn til Iands og nam land viö hliöina á fööur sínum og bræör-
um á Siglunesi. Hefir hann bygt þar steinhús tvílyft, um 60
fet á íengd og um 30 fet á breidd, og ekkert til sparað aö
vanda þaö sem bezt. Er í því gufuhitun. Hefi eg heyrt
ýmsa víöförla menn segja, aö þeir hafi á engu einu heimilis-
réttarlandi séö jafn dýra og stórkostlega bygging. — Eftir aö
Björn haföi verið tvö ár i “eynni” byrjaöi hann verzlun “í
landi” hjá fööur sínum, en hætti lienni aftur eftir fá ár, því
hann var þá um of búinn að festa fé sitt í lánum, til þess aö
geta rekið verzlunina. Galt hann góðviljans, eins og margan
hefir hent. Nokkru síðar keypti hann sögunarmylnu í félagi
viö enskan mann, Mat. Hall, stórbónda viö Westbourne; eftir
tvö eða þrjú ár gekk Mat. Hall úr félaginu; keypti þá hans
lilut Ásmundur Freeman frá Bluff, vestan viö Narrows; settu
þeir Björn og hann sögunarmylnu niður á Siglunesi, þar sem
Björn býr nú. AÖ ári liðnu seldi Ásmundur sinn hluta og
keypti af honum Gyöingafélag, sem aðsetur hefir í Winnipeg
og á Oak Point fLake Manitoba Trad. Co.) ; settu þeir upp
verzlun við Siglunes, settu gufubát á vatniö, er gekk milli
Oak Point og Sigluness og dró aö þeim sögunarvið vestan frá
Crane River ('norövestan til viö Manitobavatný og víðar frá
þar um slóöir. Eftir eitt eöa tvö ár slitu ]>eir Gyðingarn-
ir félagi við Björn og skiftu eignunum. Fékk Björn í sinn
hlut búðina á Siglunesi og sögunarmylnuna með öllum áhöld-
um. En hinir gufubátinn og timburleifar o. fl. Skönunu
eftir að þau skifti voru gjörð brann sögunarmylnan til kaldra
kola, og uröu flest áhöldin nær ónýt. Nam sá skaði svo þús-
undum doll. skifti, því alt var óvátrygt. Þegar hér var komið
seldi Björn búöina Armstrong Trad. Co., og gjöröist verzlun-
arstjóri fyrir þaö félag á Siglunesi; hélt hann þeim starfa þar
til í vor, aö hann sagöi stöðunni lausri.
Björn hefir, eins og áður er getiö, veitt tnörgum atvinnu,
bæöi við sögunarstarfið, fiskiveiöar o. f 1., og hefir þaö hjálp-
aö ýmsum frumbyggjum hér áfram urn stund. Af þvi sögun-