Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1914, Blaðsíða 153
ALMANAK 1914.
143
FRÁ ÍSLENDINGUM í EDMONTON.
(Aö mestu tekiö eftir handriti
herra Gunnars Matthíassonar).
í fám orSum skal hér getiö þeirra íslenclinga, sem hafa
tekiö sjer bólfestu í Edmonton, stjórnarsetri Alberta-fylkis.
Edmonton er stór borg, sem hefir vaxi'ö og blómgast nú á
næstliönum árum, meira hraöfara en ef til vill nokkur annar
bær í Norövesturlandinu; er þegar sjeö, aö borg sú veröur
miöstöö samgöngufæra og viöskifta í hinu gagn-auðuga
Alberta fylki, sem geymir í náttúrurskauti sínu ótæmandi
auðsuppsprettur og ákjósanlega framtíöar-möguleika.
Lengi voru norðurhjeruð fylkisins lítt kunn, eptir að
fslendingar fluttu til Alberta; þau voru jafnvel skoöuð sem
eyðimörk, óbyggileg hvítum mönnum, en svo leiddi timinn
og vaxandi þekking hið gagnstæöa í ljós.
Hinn fyrsti íslendingur, sem tók sjer bólfestu þar
nyrðra, mun hafa verið Karl Sigurðsson, Eymnndssonar,
og konu hans Jóhönnu Einarsdóttur; er þeirra getið í sögu
þessari II. kafla,^!^. þætti. Karl er vel greindur maður,
laginn og verkhagur, en nokkuð sjerkennilegur í skoðunum
sínúm; eigi hefir Karl haldið kyrru fyrir, heldur fariö víða
og lagt margt á gjöva hönd. Síðast fór hann noröur til Ft.
McMurray; stundaöi hann þar dýraveiðar um langan tíma
og nam þar land að síðustu, aö hans eigin sögn, og var einn
af þeim allra fyrstu hvítra manna, sem settust þar að. Karl
hefir ritað nokkrar blaöagreinar, og dregiö athygli manna
að ýmsum auðsuppsprettum í því héraði. Karl er kvæntur
dóttur þeirra hjóna, Tryggva Ólafssonar, bónda í Argyle,
Man., og Berglaugar Guðnnmdardóttur, Jónssonar frá
Sköruvík.