Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1914, Blaðsíða 110
100
ÓLAFUR S. THORGEIRSSON :
Ólafs var Anna Pálsdóttir, œttuS af NofSurlandi. ICona
Ólafs Magnússonar er Sigþrúður Björnsdóttir bónda Hann-
essonar frá Hn'itbjörgum í JökulsárhlíÖ, en móÖir Sigþrúöar
er Anna Jónsdóttir, bónda á Setbergi í Fellnahrepp í Noröur
Múlasýslu, Bjarnasonar bónda á Ekru, Eirikssonar á Foss-
völlum i sömu sýslu. Ólafur fluttist vestur um haf voriö
1905. Var hann tvö ár í Álftavatnsbygö og flutti síöan til
Moose Horn Bay, nam þar land og býr þar síöan. Ólafur er
greindarmaöur, þó hann unni sér ei mikils tíma til bóklest-
urs, er hann hefir þó löngun til, hefir hann gott gagn af því,
sem hann les. Hann er umhyggjusamur búmaður og býr
íorsjálega, og hefir farnast vel búskapur, bæöi heima og hér.
llann unir sér hér vel og heföi eflaust, eins og fleiri, óskað
að hann heföi komið hingaö yngri og óþreyttari. Ólafur er
glaðlyndur, vinfastur, og fastlyndur í hvívetna. f>au hjónin
eiga tvær dætur, Guörúnu, sem er gift enskum manni í
Winnipeg, og Solveigu, sem er heima hjá foreldrum sínum,
ung aö aldri. . , j
JÓN HAVARÐSSON, sonur nýnefnds Hávaröar og
fyrstu konu hans (sbr. þátt ÁlftvetningaJ. Jón er giftur
Maríu Bjarnadóttur Torfasonar frá Ásgrímsstööum i Hjalta-
staðaþinghá í Noröur-Múlasýslu. JUm Bjarna er ritað í
þætti Álítvetninga). Jón Hávarösson flutti hér norður
1907, hefir numið land í Siglunessbygö og farnast vel. Jón
er greindur maður og fremur vel aö sér eins og faðir hans.
Hann er hóglyndur maður og vinsæll, en vill þó halda sínúm
ldut ef því er að skifta.
HARALDUR FRÍMANN,, sonur Kristjáns Frímanns
vegabótaformanns á Akureyri, Jónssonar bónda Frimanns á
Naustum við Eyjafjörð, og Kristínar konu hans. Móðir
Haralds Frímanns er Ingibjörg Helgadóttir, bónda á Krist-
nesi í Eyjafirði og konu hans Guðrúnar. Haraklur flutti
vestur um haf 1906, nam land í Siglunesbygð 1911 og býr þar
siðan. Haraldur er myndar-maöur, greindur og fastlyndur.
— Með Haraldi býr bróðir hans, SIGURÐUR FRÍMANN;
hann fluttj vestur um haf 1905, vann á ýmsum stöðum um