Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1914, Blaðsíða 127
ALMANAK 1914
117
reitur á eignarjörö Jósefs Stefánssonar, bónda við TindastóJ,
sem gaf hann til legstaðar þeim dánu. Svona lifðu nýlendu-
búarnir án frekari prestsþjónustu en sagt hefir verið fyrstu
tíu árin. í júlímánuði 1898 kom að austan, frá Winnipeg,
guðfræðingur Rúnólfur Marteinsson, sá er síðar varð prest-
ur á Gimli í Nýja Islandi og síðar kennari við Wesley-skól-
ann í Winnipeg; mun hann hafa farið ferð þá að ráði kirkju-
félagsins, en ekki var það almenningi hjer kunnugt fyrir-
fram, og kom hann því sem að óvörum. Hann dvaldi hjer
i nýlendunni í það sinn tíu daga. Flutti hann fjórar messur:
tvær í Hólaskóla-húsi og tvær í Tindastóll-skólahúsi; þau
voru þá í nauðsyn notuð fyrir samkomuhús. — Mjög er það
aö líkum, að áður hann færi hjeðan hafi menn talið fyrir
honum nauðsyn þess, að prestur fengist norður; en hvað sem
um það var, þá sendi kirkjufjelagið næsta ár trúboða norð-
ur; hafði R. Marteinsson trúboðsstarf það árið; kom hann
að austan 21. desembermánaðar 1899, og dvaldi hjer til 6.
febrúar 1900. Vann R. Marteinsson, á þeim tíma, öll þau
prestsverk, sem með þurfti; flutti messur víðsvegar í byggð-
inni, skýrði börn og kenndi börnum kristin fræði; kom á
sunnudagsskóla bæði við Hólaskólahús og Tindastóls skóla-
hús. Lagði hann mikla alúð við starf sitt og hvatti bændur
til að mynda söfnuð. Þann 21. jan. 1900 var haldinn almenn-
ur fundur að Tindastól; eftir því, sem séð verður af fundar-
gjörðinni, hafa setið á þeim fundi 20 menn, þeir er atkvæði
greiddu. Var þá með meiri hluta atkvæða samþykkt safnað-
armyndun; var hann nefndur Alberta-söfnuður. Voru þá
kosnir í nefnd þrír menn, til að semja frumvarp til safnaðar-
laga, þeir Kristján Jónsson, Jóhann Björnsson og Ófeigur
Sigurðsson. Nefndin lagði frumvarpið fyrir næsta fund 30.
s.m„ og var það samþykkt með litlum breytingum. Á næsta
fundi 5. febrúar s. á„ voru safnaðarlögin staðfest og kosin
fyrsta stjórnarnefnd safnaðarins. I henni sátu: Kr. Jóns-
son, J. Pétursson, J. Björnsson, Ó. Sigurðsson og G. Eiríks-
son. — Næsta ár rjeði safnaðarstjórnin séra R. Marteinsson,
sem þá hafði tekið prestsvígslu, tvo mánuði til að þjóna Al-
herta-söfnuði; kom hann norður fyrstu dagana af nóv. og
7