Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1914, Blaðsíða 102
92
ÓLAFIJR S. THORGEIRSSON :
þar í 13 ár. Áriö 1910 seldi hann landiS og flutti bú sitt og -*
skyldulið vestur til Dog Lake og býr þar á heimilisréttar-
landi er einn sona hans hefir numiS. Tveir aörir synir Egg-
erts hafa numiS lönd í sömu section. Synir Eggerts heita t
Halldór, Marilíus og Ragnar.
HALLUR ÓLAFSSON Hallssonar bónda á Efri Hömr-
um í Rangárvallasýslu. Móöir Halls var Vigdís frá Syöri
Hömrum í sömu sýslu. Kona Halls er GuSrún Kristjana
Björnsdóttir Þorleifssonar, Jónssonar kaupmanns á Bíldu-
dal. MóSir Kristjönu var Anna Elísabet Bergsteinsdóttir
Ólafssonar frá BergvaSi í FljótshlíS.
Hallur Ólafsson flutti vestur um haf frá SeySisfir'öi í
Noröur-Múlasýslu voriS 1903; fluttist fyrst til “Bluff”, vest-
an viS Manitobavatn, og bjó þar fjögur ár. Þá brá hann
búi og flutti heim til íslands voriS 1908, en kom vestur aftur
um hausti'ö hiö sama ár. Nam hann land það ár viö Moose
Iiorn Bay og býr þar síðan. Börn þeirra Halls og Kristjönu
voru 3, 1 dóttir er lézt í æsku, og tveir synir; Ólafur sonur
þeirra er verzlunarmaður við Eriksdale, Man. Kona hans er
Guðrún Björnsdóttir fvarssonar bónda að Vaöi í Skriðdal í
Suður-Múlasýslu; en kona Björns ívarssonar var Ingibjörg
Bjarnardóttir frá Viðfirði í Suður-Múlasýslu. Annar sonur
Halls, Björn, hefir numið land í grend við föður sinn; er
kona hans Ingibjörg Bjarnadóttir, ættuð af Vestfjörðuiv.;
var móðir hennar norsk að ætt og hét Anna Maria Ballevik.
Hallur Ólafsson og synir hans eru allir nytsemdarmenn.
Sérstaklega hefir Ólafur sonur Halls getið sér góðan orð lir
sem k'aupsýslumaður.
SIBURÐUR SIGFÚSSON er Húnvetningur að ætt. »
Sigfús faðir hans, nú nýdáinn hjá Sigurði syni sínum, var
Hannesson Jónatanssonar, bróður Jóhannesar er bjó á
Breiðavaði í Langadal. Móðir Sigurðar Sigfússonar hét
Hólmfríður Halldórsdóttir Auðunssonar, er lengi bjó á Eiðs-
stöðum í Blöndudal; var Halldór bróðir Björns Blöndals
sýslumanns, föður Lárusar sýslumanns á Kornsá. Kona
Sigurðar Sigfússonar er Margrét Illugadóttir Jónassonar frá