Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1914, Blaðsíða 93
ALMANAK 1914.
83
til lífs, þá heföu þeir sokkiö í djúp gleymskunnar. Kn blá-
fátæki, marglamaði íslenzki þjóðflokkurinn átti þrek til a'S
kljúfa þessa erviðleika og brjóta sér hér braut til sigurs og
frægöar.”
Eg hefi tekið orörétt þessi ummæli Stephans í bréfi til
mín. Þau lýsa svo vel bæði manninum sjálfum og þjóð-
lífsbaráttu íslendinga hér.
Stephan dvaldi í Winnipeg 3 ár og vann hvaða vinnu,
sem fáanleg var, oft illa launaða. Vorið 1885 fór hann
vestur undir Klettafjöll og var þar yfir sumarið. Telur
hann það sumar einna skemtilegastan hluta æfi sinnar, lofts-
lagið holt og hreint og margt annað, sem honum féll þar vel.
Síðan flutti liann aftur til Winnipeg, hafði þar um stund
matsöluhús, og flutti svo þaðan hér norður árið 1892 og
hefir búið hér síðan. Hann hafði um eitt skeið gripabú
mikið, en hefir nú fækkað gripum og minkað um sig, og
hefir rekið verzlun talsverða nú síðari árin.
Það er mjótt eiði milli víkur, er gengur norður úr Mani-
tobavatni og forarflóa þeirra (sloughý, er liggja suður úr
Dog Lake. Norðvestan við þessa vík stendur hús Stepháns.
Eiga þar allir leið um, sem inn í bygðina koma, bæði að
austan og sunnan, og má því með sanni segja að Stephan
býr í þjóðbraut; hafa kunningjar hans það stundum í glett-
um við hann, að hann sitji þar eins og Heimdallur við Gjáll-
arbrú og varði innganginn í bygðina. Það er hverri bygð
liolt að fyrstu áhrifin , sem nýkomendur fá af bygðinni, séu
góð, og þau Stephán og kona hans hafa staðið þar vel í
stöðu sinni. Það er höfðingjabragur á heimili þeirra, húsa-
kynni hin beztu og húsbændur glaðlyndir og málhreifir, og
veita vel. Stephán var einn hinna fyrstu, er bygði sér stórt
og myndarlegt hús. Stephan er einn af öllum hér, og liklega
þó víðar væri leitað, sem heldur þeim forn-íslenzka höfð-
ingjasið að hafa heimboð. Býður hann þá heim öllum sveit-
ungum sínum, stærri og smærri, veitir rausnarlega og er
glaður og fjörugur eins og unglingur. Hefir hann haft þrjú
slík heimboð, síðan eg kom í ■ þessa bygð fyrir 5 árum.
Stephan á þarna tvö lönd.—Hann er tvígiftur. Giftist fyrst
28, Okt, 1887 Ingigerði Jónsdóttur frá Gilhaga í Skagafirði,