Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1914, Blaðsíða 177
ALMANAK 1914
167
ll^í G er fæddur á GarSi í Kelduhverfi í Noröur-
Þingeyjarsýslu 19. marz 1845. Foreldrar mín-
ir voru síra Magnús Jónsson, Jónssonar prests
aö Grenjaöar staö, sem eitt skifti var Konrektor á Hól-
um, líklega um 1700 eöa fyrr. Móöirmín var Þórvör
Skúladóttir frá Múla í Aöalreykjadal, Tómassonar
prests, og Þórvarar Sigfúsdóttur prests í Höföa.
Eg ólst upp í Garöi hjá foreldrum mínum, þar
til 7 ára aö aldri, þá fluttust þau austur aö Ási í Fell-
um í Noröur-Múlasýslu og dvöldu þar tvö ár, en ár-
iö 1855 fluttust foreldrar mínir norður að Grenjaðar-
stað, því þá gjörðist faðir minn aðstoðarprestur hjá
föóur sínum, síra Jóni, sem áður er nefndur. Hinn
fyrsta vetur á Grenjaðarstað 1855—61), vorum við
3 bræðurnir sendir vít á Húsavík, til þess að njóta til-
sagnar í skrift og reikningi, hjá húskennara Jakobs
Johnsens. Kennari okkar var Bjarni Gunnarsson,
sem ritaði hina snotrustu hönd, er til var á Islandi
í þá daga. Undir próf þurfti eg að ganga hjá John-
sen gamla með því að skrifa nafnið mitt, og fekk þann
vitnisburð, að eg skrifaði meðal hreppstjórahönd, sem
víst hefir ekki verið buróug í þá daga, og var eg þá á
10. ári. Um veturinn dvaldi eg og elzti bróðir minn,
Björn, hjá Sigfúsi sýslumanni Sc.hulesen, móðurbróð-
ur mínum, en Jón Skúli hafði aðsetur hjá Johnsen og
föðursystur minni, Hildi. Næsta vetur eftir fekk fað-
ir minn fyrir heimiliskennara síra Benedikt Kristjáns-
son aðstoðarprest í Múla, (sem síðar varð tengdafaðir
minn),til þess að kenna mér og okkur bræðrum skrift,
reikning og dönsku. Þegar síra Benedikt fór frá
Múla, kom í hans stað síra Magnús Jónsson, síðast
prestur í Laufási, og bættust þá fleiri námsgreinar við,
1) Þetta haust, eða snemma um veturinn, brann að kalla
allur bærinn að Múla, og fluttisf þá mikið at heimilisfólkinu ofan
að Grenjaðarstað, þar á meðal amma mín, Þórvör Sigfúsdóttir;
var hún þá búin að liggja í kör nokkur ár, og nwn eg að hún var
borin í brekánum ofan að Grenjaðarstað.