Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1914, Blaðsíða 139
ALMANAK 1914
129
í>verárþingi; faSir hans var Hjálmur Pjetursson, Jónssonar,
ættaður úr Mi'Sfiröi í Húnavatnssýslu. Kona Pjeturs, en
móöir Hjálms, var Ingibjörg dóttir þeirra hjóna: Einars og
Kristínar, sem bjuggu i Kalmannstungu. Kona Hjálms,
mó'Sir sra Pjeturs, var Helga Árnadóttir, Einarssonar, viS
seinni konu hans: Helgu Snæbjarnardóttur, prests aS Gríms-
tungum í Húnaþingi, Halldórssonar bisþups á Hólum í
Hjaltadal. Foreldrar sra Pjeturs voru hin mestu sæmdar-
hjón; var Hjálmur hinn mesti búsýslumaSur, vel viti horinn.
gætinn og stilltur; hann var um mörg ár þingmaöur Mýra-
manna. Sra Pjetur ólst upp meS foreldrum sínum; ellefu
ára aS aldri fluttist hann meS þeim aS Hamri í ÞverárhlíS
VoriS 1881 þá 18 ára gamall rjeSst hann til hins nýstofnaSa
búnaSarskóla í Ólafsdal; dvaldist hann viS þann skóla meö
Torfa Bjarnasyni jaröyrkjumanni um tvö ár viö búfræSis-
nám; næstu tvö ár — 1883-85 — var hann vestur viö tsa-
fjaröardjúp í Hnífsdal, síöan í Mýrasýslu önnur tvö ár; á
þeim árurn vann hann aö jarSabótum hjá bændum. Þá hvarf
liann aö því ráöi, aö ganga á latínuskólann i Reykjavík;
stundaöi hann nám viö hann fjóra næstu vetur og lauk þar
prófi meö II. einkunn sumariS 1891. Fór hann þá utan og
gekk á háskólann í Kaupmannahöfn næstu tvö árin, en tók
þar ekki próf; hvarf þá heim til ættlandsins aftur, haustiö
1893. Tók hann þá aS stunda guöfræöisnám viS prestaskól-
ann í Reykjavík. og útskrifaöist þaSan áriö 1895. Um næstu
fjögur ár stundaSi hann ýmist verzlunarstörf eöa barna-
kennslu, þangaö til sumariö 1899, aö hann flutti vestur um
haf til Canada. Stundaöi hann þá ýmsa almenna atvinnu
um tveggja ára tíma, fyrst í Manitoba, síöar í Minnesota í
Bandaríkjunum.
Áriö 1902 gekk síra Pjetur í þjónustu Hins ev. lúterska
kirkjufjelags Islendinga í Vesturheimi, sem trúboSsprestur
þess; hjelt hann þeim starfa um þrjú ár, eöa þangaö til 1905;
n þeim árum fór hann til hinna ýmsu prestlausu safnaSa og
veitti þeim þjónustu um lengri eða skemmri tíma; á þeim ár-
mn kom hann til Alberta-safnaSar, og veitti honurn þjónustu
um lengri tíma, sem sqgir í Alberta-“safnaÖarmálum” hjer
aÖ framan í þessum kafla.