Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1914, Blaðsíða 9
ALMANAK 1914
3
Páskatímabilið.
Kirkjuþingið í Nicæa, er haldið var árið 325 eftir Krists fæðing
ákvað og leiddi í lög kirkjunnar, að páskahátíðin skyldi ætið haldin
vera hinn fyrsta sunmidag eftir fyrsta tungl, er springi út næst eftir
2O. marzmán. Samkvæmt ákvæði þess getur páskahátíðin átt sér
stað á 35 daga tímabili, nefnilega á tímabilinu, frá 22. marz til 2Ö.
apríl, að þeim dögum báðum meðtöldum. Þetta tímabil er nefnt
p á s k a t í m a b i 1 i ð. Af þessu leiðir, að ef tungl væri fult 21.
marz og 22. marz bæri upp á sunnudag, þá yrði sá dagur (22.)
páskadagur, fyr á ári geta páskar aldrei orðið. Þetta átti sér
stað árið 1818. E11 sé tungl fult 18. apríl og 18. apríl bæri upp á
sunnudag, yrði næsti sunnudagur, páskadagur, nefnilega 25. apríl.
Það kom fyrir árið 1886.
Páskadagur. 8.
1914 12. Apríl 4. Apríl 1917 Apríl
1915 1918 31. Marz
1916 1919 1920 20. 4. Apríl Apríl
Sóltími.
Sólarhringur er sú tímalengd,er líður á milli þess,er sólin geng-
ur yfir ákveðna hádegislínu,og er það hin eðlilegasta skif ting tímans.
En sökum hinnar mismunandi hreifingar jarðarinnar nmhverfis sól-
ina og sökum bugsins á sólargangslínunni (Ecliptic), er aldrei tiá-
kvæmlega jafn-langur tími milli þess, er sól gengur yfir ákveðna
línu. Af því leiðir að það er lítt mögulegt að setja stundaklukku
eftir sól. Til að ráða bót á þessum mismun, setja menn svo að önn-
ur sól sé til,og að hún gangi með jöfnum hraða þvert yfir miðjarðar-
línuna. Er sú ímyndaða sól þá stundum á undan ogstundum áeltir
hinni einu virkilegu sól. Er sá mismunur mestur 16 mínútur. Rétt-
ur sóltími er miðaður við hina virkilegu sól, en hinn svo kallaði
„meðal sóltími" aftur á móti, er miðaður við hina ímynduðu sól.
Til skýringar má geta þess að það er að eins á tveim dögum á
árinu—á jafndægrum haust og vor—að „meðal sóltíma“ og rétt-
um sóltíma ber saman, því á þeim tveim dögum að eins er buglínan
eða sólargangslínan yfir miðjarðarlínunni.
Fyrstu peningar.
Eins snemma og sögur fara af, var gull og silfur notað sem
gangeyrir, en lengi vel þektist málmurirn að eins, semsmábútar
eða duft, og fram á þenna dag eru margir Kírar andstæðir því, að
nota mynt. A hinum miklu eyðimörkum Afríku er kaupeyrir gull-
duft í ánsu tali.
Gríski sagnfræðingurinn Heródót kveður Sydíúmenn þá tyrst.u
er slegið hafi gullpeninga og talið er að silfur liafi fyrst verið slegið
á eyjunni Egina 860 árum fyrir Krist. A fornmenjasöfnnm finnast
peningar slegnir á Persalandi árið 35O f. Kr. Elzta mynt sem þekt-
ist í Gyðingalandi var kölluð darisk eða kóngseyrir, eftir Darius
keisara, var hún slegin um 460 árum fyrir Krist.