Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1914, Blaðsíða 81
ALMANAK 1914.
71
Finnbogasonar frá StefánsstöSum í SkriSdal. En tengda-
foreldrar hans, Guömundur og Guðlaug, eru nú hjá honum
elli sinni. Þau Jónas og GulSrún eiga 9 börn, sem öll eru
á heimili þeirra, nema elzta dóttirin, Björg, sem gift er Jóni
AiSalvaröi Guömundssyni Hávarðssonar frá Hnefilsdal á Jök-
uldal. — Jónas flutti frá Dakota árið 1895 í Siglunessbygð
og hefir búiö þar síðan. Árið 1902 segist hann hafa reist
fyrsta timburhúsið í bygðinni; var þaö flóðáriö mikla, þegar
flestir flúðu bygöina, og varð hann aö flytja timbrið á sleðum
aö vetrinum um 70 mílur vegar.
Jónas er búmaöur góður og einn efnaöasti maður þess-
arar bygðar, og hefir hyggindi þau er í hag koma; hann á eitt
fallegasta heimili hér, sem ber vott um aðgætið búmannsauga.
Hann hefir haft töluverða verzlun og aflað sér fjár með því
auk búskaparins; hefir hann farið forsjállega að í þeim sök-
um og ekki reist sér hurðarás um öxl. Jónas hefir töluvert
látið sig skifta almenn málefni. Mun hann hafa verið fyrsti
hvatamaður að því að skóli var stofnaður hér, og hafði áður
prívatkennara fyrir sín börn og nokkurra nágranna sinna.
Hann hefir verið í stjórn lestrarfélags bygðarinnar og verið
féhirðir þess frá því það hófst, og farið það vel úr hendi. í
Goodtemplarafél. bygðarinnar er hann líka og var formað-
ur þess um alllangt skeið; er hann einn af þeim fáu, er þann
flokk fylla af eldri mönnum. Hann er gleðimaður á mann-
fundum og einn þeirra fáu, er lieldur þar uppi sönglist og
ræðuhöldum. Hann er gestrisinn og glaður heim að sækja.
Ef heimilið er undirstaða þjóðfélagsins, og því munu fáir
neita, þá er óhætt að telja Jónas með nýtustu bændum hér.
DAVÍÐ GÍSLASON er Borgfirðingur að ætt, sonur
Gísla bónda Jónssonar og Sólborgar Gisladóttur, er lengi
bjuggu í Breiðholti í Flókadal. Kona Daviðs er Guörún And'
résdóttir Guðmundssonar, en móðir Guðrúnar var Kolfinna
Jakobsdóttir; bjuggu foreldrar Guðrúnar lengi aö Hvassafelli
1 Á'orðurárdal i Mýrasýslu. Daviö flutti vestur um haf frá
Hvassafelli árið 1899; dvaldi eitt ár í Winnipeg og flutti síð-
an 1 þessa bygð, og nam þar land og hefir bygt eitt hið snotr-
35ta íbúðarhús í bygðinni með miðstöðvarhitun. — Davíð er