Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1914, Blaðsíða 119
ALMANAK 1 Ol 4.
109
rún kona hans ráöskona hjá Jóni Sigurössyni, er þá var ný-
lega or'öinn ekkjumaöur. Voriö 1905 keypti Jón, nieð hjálp
Sigtryggs Jónassonar þingmanns, 10 ekrur á Rabbit Point;
bjó hann þar með fjölskyldu sína þar til vorið 1908, að
hann flutti norður á Siglunes og nam þar land. Hefir hann
dvalið þar síðan með börnum sínum, sem öll eru til heimilis
hjá honum nema elzta dóttirin, sem áður er getið; vinna þau
af og til í Winnipeg og víðar. Þau hafa bygt gott íbúðar-
hús á landi föður síns, eiga þau búið í samlögum, sem ekki
er mjög stórt en mun skuldlítið, og má segja þeim farnist
vel. Páll og Guðmundur, synir Jóns, hafa líka numið þar
lönd.
í æsku var Jón mjög hneigður til bókarinnar, en fátækt
og framtaksleysi stóðu í vegi fyrir bóknáminu. Tveggja
vikna tíma naut hann tilsagnar í dönsku og reikningi, og er
þá upptalinn skólalærdómur hans.
Eftir 1880 fór Jón að taka þátt i sveita- og landsmálum;
var hann eftir það stöðugt í sveitarstjórn, nema tvö ár, þar
til hann fór af landi burt, ýmist hreppsnefndarmaður, oft-
ast oddviti, sýslunefndarmaður, varatnaður í amtsráði síð-
ustu árin og hreppstjóri í eystri hluta Vopnafjarðarhrepps
frá því haustið 1900 til þess hann fór af landi burt. Póst-
afgreiðslumaður var hann líka þau ár, og afgreiðslumaður
erlendra skipa.
Árið 1886 bauð Jón sig frarn til þingsetu fyrir Norður-
Múlasýslu, en féll með litlum atkvæðamun fyrir Einari
sýslumanni Thorlacíus. Átti Jón um þær mundir talsverðri
mótstöðu að mæta, einkum af hendi “heldri manna” sýsl-
unnar. Hann hafði skrifað í blaðið “Austra” all-harðorð-
ur aðíinningar um búnaðarskólann á Eiðum; höfðaði þá
skólastjóri, Guttormur Vigfússon, mál á nióti Jóni; urðu í
þyí máli svo miklar vitnaleiðslur, að málsskjölin voru 76
þéttskrifaðar stórar arkir, en það fór úr héraði fyrir yfir-
dóm. Tapaði Jón málinu bæði í héraði og fyrir yfirdómi,
°g var dæmdur í 100 kr. sekt og allan málskostnað, er nam
uær 600 kr. Var það margra mál, að þar hefði margur
góður drengur svarið “loðinn eið” á móti Jóni. Málskostn-
að og sekt borgaði Jón þegar að fullu, og átti þá fremur
erviðan hag. Valdimar verzlunarstjóri Davíðsson á Vopna-