Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1914, Blaðsíða 182
172
ÓLAFUR S. THORGEIRSSON :
ferSamenn mínir fóru þaSan til Kanada, en eg hélt
áfram vestur eftir Bandaríkjunum. Til Long Pine í
Nebraska komum við loks 6. ágúst, eftir næstum mán-
aSar mjög svo þreytandi ferS. I Long Pine (mjög
lítiS þorp) hitti eg strax fornvin minn og leikbróSur,
Jón Halldórsson, því eg hafSi ákveSiS, áSur en eg fór
af íslandi, aS setjast að nálægt honum og öSru fólki,
er eg þekti þar. Um landgæSi vissi eg lítiS eða ekki
neitt. Fyrsta veturinn dvaldi eg hjá Jóni Kristjáni,
hálfbróSur Jóns, sem áSur er nefndur. Þegar um
haustiS tók eg út rétt á 160 ekrum af stjórnarlandi,
og öSrum 160 ekrum, sem eg fekk meS þeim skilmál-
um aS planta á því 10 ekrur af trjám. í sama mund
tók eg líka mitt fyrsta borgarabréf.
Um voriS 1887 fluttist egálandiS, eftir aö eg hafSi
bygt á því hús úr hnausum; var þaS skjólgott og ekki
mjög heitt á sumrum. I þessum moldarkofa lifði eg
svo í 5 ár, gjörSi allar þær umbætur á löndunum,sem
lögin kröfSu, en af því aS jarSvegur var ekki góSur,
hæSóttur og sendinn og langt var fyrir börnin í
skóla, sem líka var léleg kensla í, sá eg aS þetta gat
ekki orSið mitt framtíSar heimili, svo eg afréS aS
flytja til Minnesota, meS því eg var líka þá búinn aS
fá fullan rétt á löndunum og gat fariS hvert sem eg
vildi. Eftir aS hafa spurt mig fyrir hjá manni, sem
eg þá ekki þekti, Leifi Hrútf jörð aS Baldur Manitoba,
réð eg af að flytja til Duluth, þar sem eg hefi lifaS
síSan, og kom eg þangaS seint í apríl 1892. Börnin
3 byrjuSu nú strax fyrsta haustiS aS ganga á alþýóu-
skólann og svo á lýðháskólann (High school) í 4 ár.
Þau luku námi í þessum skólum og eitt þeirra í
ríkisháskólanum.
í endalok vertíSar eru nú börnin mín orSin 5, 4
stúlkur og 1 drengur (ekkert dáiS), og þau tvö sem
bættust viS í þessu landi, hafa nú lokiS sama námi og
hin; þó er nú þaS yngsta enn í lýSháskólanum hér í