Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1914, Blaðsíða 106
96
ÓLAFUR s. Thorgeírsson:
Skapar sér sín.ar skoSanir sjálfur og heldur þeim einariilega
fram. Hann er talinn nær tveggja maki aS buröum og
harSgjör og fylginn sér.
SIGURÐUR JÓNSSON flutti til Narrows úr Álfta-
vatnsbygö, og er hans lítillega getiö í þætti Álftvetninga.
Hann er sonur Jóns bónda á Skeröingsstööum í Baröa-
strandasýslu, fæddur 1851 og uppalinn hjá foreldrum sínum
á Skeröingsstööum. Giftist áriö Í878 Þorbjörgu Þorsteins-
dóttur, ættaöri úr Eyrársveit, og reisti bú sama ár á Skerö-
ingsstööum í tvíbýli viö fööur sinn og bjó þar til þess er
hann flutti vestur um haf áriö 1888. ■ Kom til New York
11. Júlí þaö ár og fór þá ásamt fleiri Islendingum til Seyre-
ville í N. J. og dvaldi þar í 11 ár og vann öll þau ár dagp.
launavinnu hjá sama manni. Þar misti Siguröur konu sina
og varö hann þá aö vinna fyrir 5 börnum einn um nokkur ár.
Áriö 1899 giftist Siguröur í annaö sinn Margrétu Þorsteins-
dóttur, ekkju ættaðri úr Landeyjum í Rangárvallasýslu;
‘'hafði hún búiö allmörg ár rausnarbúi í fyrra hjónabandi
sínu og þótt jafnan sæmdarkona, bæöi þá og síöar.” Seint
á árinu 1899 fluttist Sigurður frá SeyreviIIe, N.J., til Kanada
og nam land í Álftavatnsbygð og bjó þar nokkur ár. Flutti
hann síöan hér noröur og bjó hér nokkur ár (4 eða 5J, en er
11Ú fluttur burt aftur og til Grunnavatnsbygöarf ?J Vegna
ókunnugleika þess, er ritar, er ekki meira um Sigurö aö
segja, en heyrt hefi eg, aö hann sé fróðleiksmaður.
GUDMUNDUR GUÐMUNDSSON, Snjólfssonar, ætt-
aður af Suöurlandi. Kona hans er Sesselja Jónsdóttir, yfir-
setukona, ættuð úr Borgarfjarðarsýslu. Guðmundur flutti
vestur um haf 1901 frá Fáskrúösfirði í Suður-Múlasýslu, var
fyrst 2 ár í Winnipeg og flutti síöan noröur fyrir Narrows
og nam þar land; býr hann þar enn og farnast vel. Guö-
mundur er hægur maður og lætur lítiö yfir sér, en vinsæll
og vel metinn.
ARNLJÓTUR GÍSLASON Ólafssonar, Húnvetningur
að ætt, bróðursonur séra Arnljóts Ólafssonar. Kona hans